Kom heim klukkan sjö í morgun frá New York. Allir sváfu vært þegar ég læddist inn og því fór ég bara að tæma uppþvottavélina og vesenast í eldhúsinu. Daf og Sus komu niður uppúr átta og voru steinhissa á að ég væri kominn heim. Þau héldu að ég mundi ekki koma fyrr en seinna í dag.
Ég hef verið hálfþreyttur i dag enda sefur maður hvorki mikið né vel í flugvélum en þrátt fyrir það tók ég áskorun Núma um að spila tennis seinnipartinn í dag.
Á morgun, þegar ég er búinn að þvo af mér ferðarykið og orðinn sprækur, skrifa ég almennilega færslu í dagbókina.