Nýju fótboltaskórnir mínir, grænu fótboltaskórnir, verða teknir aftur í notkun í kvöld þegar fyrsti leikur tímabilsins hefst í Hornbæk. Ég hef enn og aftur verið valin í byrjunarliðið og það gleður mig mjög. Áhyggjur mínar snúast fyrst og fremst um skóna, þeir meiða mig nefnilega svo mikið þegar ég hleyp í þeim. En þetta verður maður víst að þola.
Ég á svo von á heimsókn eftir fótboltaleikinn í kvöld. Jón Kalman er á ferðinni og vantar næturgistingu sem hann fær á Søbækvej!
Hér birti ég mynd af tómötunum mínum. Uppskeran er góð.