Site icon K A K T U S I N N

Að mæta ókunnugum manni á internetinu.

Félagi minn spyr mig reglulega hvað internetið geri gott fyrir mig og mannkynið. Hvort internetið sé í raun góð uppfinning. Hann er efasemdarmaður. Mér varð hugsað til hans og internetsins þegar ég áttaði mig á að Kafka dó fyrir 100 árum í dag þann 3. júní.

Internetið er einmitt staðurinn þar sem núorðið er ætlast til þess að maður búi til sjálfsmynd en um leið virðist netið vekja ægilegan óróa yfir því sem kallast sjálfsmynd. Kafka skrifaði einhvers staðar.  „Ég á eiginlega ekkert sameiginlegt með sjálfum mér,“ og það gæti  einmitt verið lýsing á hvernig maður skynjar sjálfan sig þegar maður mætir sjálfum sér á internetinu.

 

 

Exit mobile version