Site icon K A K T U S I N N

Ferð til Humlebæk

Louisiana safnið í Humlebæk í Danmörku gæti sennilega talist eitt fallegasta listasafn í heimi og safnið sjálft réttlætir algjörlega helgarferð til Danmerkur. Dagana 22-25 ágúst verður haldin árlega bókmenntahátíð í safninu og sú hátíð gerir ferð til Danmerkur enn fýsilegri.

Smám saman hefur bókmenntahátíðin í Louisiana unnið sér sess sem helsta bókmenntahátíð veraldar. Hátíðin var fyrst haldin árið 2010 en á hverju ári hefur starfsmönnum hátíðarinnar tekist að lokka stærstu nöfn bókmenntanna til að koma og tala um bókmenntir. Aðsóknin er alltaf algjörlega frábær og uppselt á nánast alla liði hátíðarinnar. Stærstu viðburðirnir eru haldnir í stóru tjaldi á grasbalanum milli safnhúsanna. Í ár eru eins og venjulega margir góðir gestir. Meðal annars koma til hátíðarinnar írski höfundurinn Colm Tóibín (Brooklyn, Long Island), enski rithöfundurinn Rachel Cusk (Outline-þríleikurinn), Kjell Westö frá Finnlandi (Skymning 41), Lorrie Moore („the nearest thing we have to Chekhov“) frá Bandaríkjunum, Mohsin Hamid (Exit West) frá Pakistan, Matthias Feldbakken (Stakkel) frá Noregi en eini fulltrúi Íslands er Ann Carson. Og til að gera það enn áhugaverðara að hlusta á Ann Carson er viðmælandi hennar á hátíðinni engin önnur en skáldkonan Linn Ullmann..

Í fyrra átti Ísland tvo fulltrúa á bókmenntahátíðinni: Auði Övu Ólafsdóttur og Fríðu Ísberg.

 

Exit mobile version