Site icon K A K T U S I N N

Hvalfjörður. Á nærbuxum í roki og rigningu

Allt í einu er farið að hvessa hér í Hvalfirðinum þar sem alltaf er kyrrt. Ég vaknaði í nótt við veðurlætin, rok og rigning. Ég lá í myrkrinu og hlustaði á gólið í vindinum. Sjálfur var ég undir hlýrri sæng en skyndilega laust niður í minn öfluga heila að Nói og Milla höfðu verið í heita pottinum í gærkvöldi og sennilega hafði enginn fest lokið og það gæti auðveldlega fokið í þessu roki.

Það tók mig nokkrar mínútur að komast að þeirri niðurstöðu að ég yrði að fara út, ekki yrði hjá því komist og festa lokið þótt ég hefði ekki minnstu löngun til að fara á nærbrókunum út í veðurbrjálæðið. En það var hressandi að berjast við að koma festa pottlokið í myrkrinu og ég sofnaði vært eftir að hafa smeygt mér kaldur og hrakinn undir volga sængina.

En í dag á ég víst að þjóta til Reykjavíkur að búa til kynningarmyndband um bókina. Ég hef velt fyrir mér hvernig best er að kynna þessa bók og fer í huganum yfir hvað ég ætli að segja.

Exit mobile version