Site icon K A K T U S I N N

„Off the record“

Í morgun þegar ritnefnd Kaktussins settist niður til að skoða hvaða fréttir úr bókaheiminum væri gaman að færa lesendum Kaktussins rann tvennt upp fyrir ritnefndarmeðlimunum. Í fyrsta lagi virðist vera mikil agúrukutíð í bókmenntaheimum. Það er líkast því að útgáfustarfsemin liggi í dvala á þessum sumarleyfisvikum og fátt sé nýtt að frétta. Í öðru lagi virðist það vera svo að það sem þó gerist megi bara ekki fréttast, að minnsta kosti ekki strax. Æ ofan í æ fær Kaktusinn misforvitnilegar upplýsingar „off the record“, eða eins og sagt er: „það má ekki skrifa um þetta á Kaktusnum.“  Það er varla sú „frétt“, sama hversu ómerkileg hún virðist vera, sem ekki er lögð undir slíkan leyndarhjúp. Hvað skyldi vera svona hættulegt við fréttir úr bókaheimum?

Frá útlöndum berast þó þau tíðindi að Spotify sé loksins farið að skila hagnaði. Á einu ári hefur áskrifendum á heimsvísu fjölgað um 12% og eru nú 266 milljónir. Um leið og sagt var frá þessum sögulegu umskiptum í rekstri Spotify boðar fyrirtækið útvíkkun hljóðbókaframboðs síns. Hingað til hafa eingöngu áskrifendur Spotify í enskumælandi löndum; Bandaríkjunum, Englandi, Nýja Sjálandi og Ástralíu haft aðgang að hljóðbókum í gegnum Spotify. Í Bandaríkjunum gengur svo vel að Spotify er orðinn næst stærsti miðlari hljóðbóka í landinu. Nú er eingöngu tímaspursmál hvenær Spotify býður áskrifendum sínum á Norðurlöndunum aðgang að hljóðbókum. Ómögulegt er að segja hvaða áhrif það hefur á starfsemi Storytel á Norðurlöndunum og á Íslandi og hvaða áhrif það hefur á afkomu rithöfunda. Hingað til hefur Spotify ekki talið sérlega örlátt gagnvart þeim listamönnum sem framleiða þá tónlist sem Spotify miðlar til áskrifenda sinna en kannski þykir Spotify eigendum sérstaklega vænt um rithöfunda og er reiðubúð að launa þeim sérlega vel fyrir framlag sitt.

Exit mobile version