Site icon K A K T U S I N N

Traktorar í Úkraínu

Fyrir nokkrum árum kom út bókin Stutt saga um traktora í Úkraínu eftir rithöfundinn, Marina Lewycka frá Úkraínu. Bókin vakti mikla alþjóðlega athygli en það gerist afar sjaldan með bækur frá Úkraínu. Á sínum tíma las ég bókina með útgáfu í Danmörku í huga en komst á endanum að þeirri niðurstöðu að titill bókarinnar væri það eina sem mér líkaði við bókina og keypti því ekki þýðingarréttinn. En þessi skáldsaga kom aftur í huga mér þegar ég heyrði á dögunum að í hinni stríðshrjáðu Úkraínu væru ljóðskáld skyndilega mjög í hávegum höfð og að sala á ljóðabókum hefði margfaldast í landinu. Bókabúðakeðja í Úkraínu tilkynnti í vikunni að 250% söluaukning hafi orðið á sölu ljóðabóka í ár og stór forlög í landinu sem aldrei hafa gefið út ljóðabækur hafi bætt ljóðum á útgáfulista sína.

Fréttir herma að lóðskáld fylli íþróttahallir og ekki líði sá dagur í landinu að ekki komi út ný ljóðabók eða tilkynning um ljóðaupplestrarkvöld. „Ljóðin eru nú listform fjöldans,“ er haft eftir einum af bókmenntapáfum landsins.

ps. bókmenntahátíðin í Louisiana kláraðist um helgina. Stjörnur hátíðarinnar, ef maður má segja svo, voru Cólm Tóibín og Anne Carsson, sem voru áhugaverð, sjarmerandi og skemmtileg á sviðinu.

Þvílík veisla sem þessi hátíð er..

Exit mobile version