Site icon K A K T U S I N N

Töfrarnir

Ég hjó eftir því að hláturmilda konan sem situr í næsta sæti hér á kaffihúsinu í Humlebæk nánast hrópaði að vinkonu sinni sem þó sat andspænis henni: „Það liggur í kjarna mannssálarinnar að halda alltaf að eitthvað enn betra bíði manns á næstunni. Allt lífið snýst um það að von er á einhverju enn betra en maður hefur. Þetta eru … það eru, altså …  töfrar lífsins …“ Síðan þögðu þær báðar eins og til að melta þessi ummæli ungu konunnar með bjarta hláturinn.

 

 

Exit mobile version