Site icon K A K T U S I N N

Ungverska menningarmiðstöðin í Austur-Berlín

Ungverska menningarmiðstöðin lokaði klukkan 18:00 og nú var klukkan fimm mínútur yfir.
Hún sneri sér að honum og sagði: Þeir eru búnir að loka.
Og hann svaraði: Eigum við að fá okkur kaffibolla?
Og hún sagði: Já.
Þetta var allt og sumt. Allt gerðist á þann hátt sem það átti að gerast.
Þann 11. júlí árið 1986.

 

Exit mobile version