Í dag hefur ritnefnd hlammað sér við hringborðið í Batman-íbúðinni í 3. arr í París. Fundarefni dagsins er stofnun nýs tímarits um bókmenntir sem sænska forlagið Volante hefur sett á koppinn – eða réttara ætlar að setja á koppinn á næsta ári. Samkvæmt fréttaflutningi í Svíþjóð er gífurlegur metnaður á bak við þessar fyrirætlanir. Tímarið hefur sett sér það markmið að „finna, þróa og miðla þeim hugmyndum sem þykja eftirtektarverðastar hverju sinni.“ Tímaritið á að bylta bókmenntaumhverfinu í Svíþjóð. Verkefnið hefur vakið töluverða athygli í Svíþjóð og sumir (einstaklingar) eru gífurlega bjartsýnir á að með þessu framtaki náist að snúa við þeirri þróun sem sést víða að bókmenntir og aðrar mannlyftandi listir séu á undanhaldi fyrir öflum sem sumir kenna við kapítalisma.
Það eru tímaritin The Economist og The Atlantic sem eru fyrirmynd að hinu nýja tímariti og meiningin er að það komi út fjórum sinnum á ári. Fyrsta hefti ritsins er væntanlegt í febrúar árið 2025.
Til að ná hinum háleitu markmiðum sínum hefur sænska forlagið Volante stofnað til samstarfs við gamla sænska Handelsbanken eða undirdeild hans sem gengur undir nafninu EFN sem hefur hingað til haft það hlutverk að miðla fréttum úr sænska viðskiptalífinu. En frá peningatönkum bankans eiga peningarnir að streyma svo mögulegt verði að setja tímaritinu þann gífurlega háa gæðastandard sem lagt er upp með.
Ritnefnd Kaktussins var ekki sérlega bjartsýn á að prentað tímarit – sama hversu gott það er og athyglisvert – sé leiðin til að bylta bókmenntaumhverfi, hvorki i Svíþjóð eða annars staðar í heiminum. Tímarit eru of þung í vöfum fyrir hraðann í nútímanum. Það sem eru hinar albestu hugmyndir á þeim tíma sem tímaritið er skrifað geta orðið úreltar og slitnar þegar búið er að ritstýra, hanna, brjóta um, prenta og dreifa tímariti til lesenda sinna.
Internetið, með alla sína kosti og galla, hefur margt framyfir prentaða tímaritaútgáfu þegar kemur að því að miðla því sem efst er á baugi. Útgáfa sem bylta á bókmenntaumhverfi á sér sennilega engar efnahagslegar forsendur og því er það ánægjulegt að banki með allar sínar vaxtatekjur og svimandi hagnaðartölur sé tilbúinn að veita einhverjum af þeim peningum sem annars fylla bara hina stóru peningatanka í verkefni sem hefur það að leiðarljósi að lyfta anda heillar þjóðar.
Væri mögulegt að leika listir Volante eftir á Íslandi? Væri forlag, eða vel meinandi einstaklingar, reiðubúnir að leggja í samskonar verkefni sem bylta mundi bókmenntalífi landsins? Stofna sprelllifandi bókmenntarit á vefnum þar sem daglega væri birt allt það nýjasta, besta, forvitnilegasta og áhugaverðasta sem er að gerast í bókmenntum landsins og heimsins alls? Er til sá banki eða viðskiptastofnun sem tilbúin er að veita slíku verkefni nauðsynlegan fjárhagsstuðning svo að hægt væri að vinna slíkt verkefni af áður óþekktum metnaði?
– ALB, fréttaritari Kaktussins í Stokkhólmi.

