Ursula K. Le Guin hefði orðið 94 ára í dag (25. júní) en hún þykir af mörgum heimsins fremsti sci-fi-höfundur. Henni tókst einhvern veginn, næstum áður en internetið var fundið upp, að búa til sína eigin bloggsíðu og þar er víst margt sem vert er að skoða.
Bæði höfundar og lesendur hafa rýnt í blogg-skrif Ursulu til þess að komast í betri kynni við höfundinn og „ná þannig enn dýpri tengslum við bækur hennar.“ Ég hef enn ekki rekist á stórkostlega gullmola á vefsíðu Ursulu nema mér fannst gaman að lesa um rútínu dags hennar:
- 5:30 – vakna, liggja í rúminu og hugsa.
- 6:15 – fara á fætur og borða morgunmat (stærðar).
- 7.15 – koma mér að verki og skrifa, skrifa, skrifa.
- Hádegi – hádegismatur.
- 13:00-15:00 – lestur og tónlist.
- 15:00-17:00 – svara fyrirspurnum, húsþrif (kannski).
- 17:00-20:00 – búa til mat og borða hann.
- Eftir 20:00 – hneigist til að verða mjög heimsk og um það þarf ekki að ræða.

