Site icon K A K T U S I N N

Kínverskur samfélagsmiðill til bjargar

Þær fréttir berast að sænska stórforlagið Bonniers hafi ákveðið að fara nýjar leiðir – ja, nýjar leiðir er kannski fullmikið sagt – og fá svokallaðan „áhrifavald“ í lið með sér til að auka bóksölu og ná sambandi við hina ungu kynslóð sem virðist vera fjarlægjast bóklestur. Bonniers hefur í þessu skyni stofnað undirforlagið FELIX sem hinn ungi „áhrifavaldur“ sem heitir Jasmine Darban á að stýra; það er að segja velja útgáfubækur og kynna þær á samfélagsmiðlum.

Fyrir á árinu brá Forlagið á það ráð að fá Emblu Rún Hall til starfa en hún hafði vakið athygli fyrir bókainnslög á kínverska samfélagsmiðlinum TikTok. Hugmynd Forlagsins var að ná til TikTok notenda landsins og kynna þeim bækur Forlagsins.

„Ég er aðallega bara að tala um íslenskar bækur og vekja áhuga á lestri hjá ungu fólki. Vekja athygli á því sem verið er að gefa út því það hefur glatast svo mikið einhvern veginn. Það er gat hjá ungu kynslóðinni því fólk á mínum aldri er sumt bara hætt að lesa íslenskar bækur,“ sagði Embla í tilefni af ráðningunni.

Myllumerkið #booktok á TikTok hefur náð töluverðri útbreiðslu og hefur sumum höfundum jefnvel tekist að skapa sér nafn í gegnum TikTok miðilinn og selt bækur í þúsundatali. Fyrst og fremst hefur TikTok heppnast að skapa áhuga á svokölluðum romance, fantasy og romantasy bókum þar sem Sarah J Maas og Coleen Hoover eru fremstar í flokki.

Ritstjórn Kaktussins hefur ekki hugmynd um hvort vinna Emblu á TikTok hefur skilað mikilli extra-sölu fyrir bækur Forlagins. Það væri fróðlegt að geta mælt slíkt. En um þessar mundir kynnir hún útsölumarkað Forlagsins á Fiskislóð.

 

Exit mobile version