Site icon K A K T U S I N N

Ástir, svik og álfaerótík.

Á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn býðst manni að kaupa bækur bandaríska rithöfundarins Colleen Hoover á að minnsta kosti fjórum bóksölustöðum á leiðinni frá öryggishliði flugvallarins og út í flugvél. Þetta gildir ekki um Arnald Indriðason, Stephen King, Gerði Kristnýju né aðra fræga alþjóðlega höfunda. Þar að auki virðist annar hver farþegi í fluginu milli Kaupmannahafnar og Keflavíkur vera að lesa eina af bókum hennar.

Í ljósi þessara gífurlegu vinsælda mrs. Hoovef ákvað ritnefnd Kaktussins í síðustu viku að lesa eina af bókum hennar, It Ends With US. Bókin var lesin til enda  og það kom í ljós að bókin féll ekki að smekk ritnefndar. Þrátt fyrir það eða einmitt vegna þess geta milljónir annarra bóklesara ekki beðið eftir að höfundurinn sendi frá sér nýja bók. Ekki eru margir rithöfundar sem eiga jafn heita áhangendur og einmitt Colleen Hoover.

Á metsölulista Eymdunsson (erlendar bækur) eru í þessari viku heilar fjórar bækur eftir Colleen Hoover. Satt að segja tilheyra allir 10 bækurnar á listanum, nema ein (Atomic Habit), svokölluðum romance-geira eða það sem kallast romantasy  (blanda af fantasy og romance, stundum kallað álfaerótík). Vitnar listinn kannski um nýtilkomna gleði landsmanna fyrir þessari tegund bókmennta.

Rithöfundurinn Colleen Hoover og bækur hennar eru alls staðar. Leið þessa 46 ára Texasbúa til frægðar er bæði sérstök og lygasögu líkust. Hún var 31 árs þegar hún hóf að skrifa fyrstu bók sína. Hún bjó á þeim tíma í hjólhýsi með manni sínum, flutningabílstjóranum William Heath, og þremur drengjum þeirra. Hrein tilviljun réði því að hún hóf að skrifa bók um ungan mann sem keppir í því sem kallast „slam poet“. (Til skýringar: Slam poetry er nokkuð vinsæl keppnisgrein þar sem ljóðskáld keppir í að flytja eigin texta eða ljóð á sem líflegasta og frumlegasta hátt fyrir áheyrendur og dómara)

Bókaskrifin stundaði Coolleen sér til dægrastyttingar á meðan hún beið eftir syni hennar sem þurfti að mæta á leiklistaræfingar en hann tók þátt í uppsetningu skólaleikrits skólans síns þetta árið. Tvö klukkutíma í senn sat hún í biðsal samkomuhúss og skrifaði á meðan sonurinn æfði hlutverk sitt í skólaleikritinu. Hún sendi kaflana jafnóðum og hún kláraði til mömmu sinnar og systur. Þær mæðgur urðu svo spenntar fyrir sögunni að þær ýttu stöðugt eftir nýjum kafla því ákafinn var svo mikill að fá að vita hvað gerðist næst og hver örlög sögupersónanna yrðu.

Þegar Colleen hafði skrifað bókina til enda hlóð hún handritinu upp á sjálfsútgáfusíðu Amazon svo amma hennar gæti lesið bókina á nýja Kindle-lestrarbrettinu sínu. En það liðu þó ekki nema  nokkrir mánuðir þar til bókin Slammed, eins og hún var kölluð, var komin á metsölulista The New York Times. Þökk sé því hversu vel bókin spurðist út á meðal Kindle-eigenda. Slík velgengni sjálfsútgáfubókar eftir óþekktan einstakling á sér varla fordæmi í sögu The New York Times-metsölulistans.

Þetta var árið 2012. Nú eru tólf ár liðin og á þeim tíma hefur Colleen skrifað 24 nýjar bækur (ástarsögur, spennusögur og unglingabækur) og 17 þeirra hafa lent á The New York Times-metsölulistanum. Samkvæmt athugunum er lesendahópurinn fyrst og fremst ungt fólk og konur. Þetta eru lesendur sem heillast af mjög tilfinningahlöðnum frásögnum Colleen Hoover. Fjalla sögurnar um heimilisofbeldi, eitraða karlmennsku, fósturmissi, framhjáhald, og önnur tilfinningaleg áföll. Sagt er að höfundurinn sérhæfi sig í skrifa bækur sem krefjast þess að lesandinn hafi sálfræðing sinn sér við hlið: „Ég græt aldrei þegar ég les bækur en sögulokin í þessari bók fengu mig til af orga af sorg,“ skrifar einn af aðdáendum Colleen Hoover á TikTok en aðdáendurnir kalla sig CoHo-er. Á TikTok og BookTok nýtur hún gífurlegrar hylli og hefur #ColleenHoover myllumerkið verið skoðað meira en 3,2 milljörðum sinnum.

Í byrjun árs 2023 var Colleen Hoover valin ein af 100 áhrifamestu einstaklingum ársins af tímaritinu Time enda hefur hún óneitanlega haft töluverð áhrif á bókaiðnað heimsins. Áhangendaskari hennar er hávær, trúfastur og stór. Hefur Colleen selt meira en 20 milljónir bóka og á árinu 2022 voru sex af bókum hennar samtímis á The New York Times- metsölulistanum. En um svipað leyti og hún hlaut þessa miklu upphefð hjá Times-tímaritinu missteig rithöfundurinn sig illilega og kallaði yfir sig mikla reiði áhangenda sinna.

Borin áfram af gífurlegum meðvindi og vinsældum, sem engin takmörk virtust vera sett, hefur Colleen Hoover ákveðið að gera nafn sitt að vörumerki og látið  skrá merkið ColleenHoover®. Undir því merki selur hún margskonar vörur tengdar bókum sínum. Meðal annars framleiðir hún svokölluð heimilisföt (eins konar jogging buxur og peysur í stíl) í margvíslegum gerðum. Hönnun fatalínunnar byggir á atriðum úr sögum  höfundarins og eru peysur og buxur ColleenHoover® merkisins oft skreyttar með tilvitnun í eina af bókum höfundarins eða bera titil bókar á baki, ermum eða á buxnaskálmum.

Ein af þeim vörum sem Colleen framleiddi í upphafi árs 2023 var litabók byggð á sögunni It Ends With Us sem segir frá fórnalambi heimilisofbeldis. Þessi litabókaútgáfa fór illa í lesendur og þótti mörgum sem höfundurinn væri með útgáfunni að hylla heimilisofbeldi eða gera lítið úr afleiðingum þess og kallaði Colleen yfir sig þungan skítastorm. Svo mikil var reiði aðdáendanna að Colleen ákvað snarlega að hætta við útgáfuna og baðst innilega afsökunar á taktleysi sínu. „Ég heyri til ykkar og ég er sammála,“ sagði Coollen á Instagram þegar hún dró litabókina til baka. „Ég ætla ekki að afsaka neitt né ásaka neinn. Ég hef haft samband við forlagið og látið þau vita að ég sé hætt við útgáfuna.“

Þrátt fyrir þessa hrösun heldur Colleen Hoover áfram að bæta í vörulínu sína og skrifa nýjar bækur. „Ég get verið ansi fljót að skrifa eina bók. Fyrstu bókina mína skrifaði ég til dæmis á 30 dögum. En ég vinn líka 16 klukkutíma á dag.“ Nýjasta bókin hennar Never, Never sem kom út í febrúar árið 2023 er þó skrifuð af rithöfundinum Taryn Fischer í „samvinnu“ við Colleen Hoover. Virðist sem að hlaupinn sé iðnaður í bókaskrif höfundarins.

Tvær bækur Colleen Hoover hafa komið út í íslenskri þýðingu hjá bókaforlaginu Sölku, bækurnar 9. nóvember og Verity. 

Exit mobile version