Site icon K A K T U S I N N

Bókmenntahátíð í ágúst

Dagana 17-20 ágúst verður haldin  hin árlega bókmenntahátíð í Louisiana-safninu í Humlebæk. Dagskráin í ár er sérstaklega glæsileg og svo heppilega vill til að tveimur af skærustu stjörnum íslenskra bókmennta er boðið að taka þátt í hátíðinni; Auður Ava Ólafsdóttir og Fríða Ísberg koma fram nokkrum sinnum á hátíðardögunum. Aðrir gestir eru meðal annars Haruki Murakami, Claire Keegan, Ali Smith, Tessa Hadley, Hernan Diaz, Ian McEwan … og svona má lengi telja. Það er því gífurleg upphefð fyrir Auði og Fríðu að vera í hópi þessara stórkostlegu skálda á þessari stórkostlegu bókmenntahátíð.

Fyrir skömmu komu bækur eftir bæði Auði og Fríðu út hér í Danmörku. Eden bók Auðar fékk stórkostlega dóma í Politken um helgina. 6 hjörtu af 6 mögulegum og var dómurinn einn langur lofsöngur um skáldsöguna. Enn hefur aðeins einn dómur birst um bók Fríðu, Merkingu, hér í Danmörku. Það var í dagblaðinu Information fyrir skömmu. Gagnrýnandinn var ekki á sömu bókmenntalínu og Fríða og var ekki eins heilluð af bókinni og margir aðrir hafa verið.

Ég varð vitni að því þegar bók Fríðu var boðin dönsku forlögunum í fyrra. Það greip um sig gífurleg spenna og uppnám meðal bókafólks og allir vildu næla sér í útgáfuréttinn á bók hins unga höfundar. Öll stóru dönsku forlögin höfðu samband við mig til að fá mig til að gefa skýrslu um bókina. Á þessum tíma var ég aðeins að vinna fyrir danska forlagið Gutkind og það urðu þeim hjá Gutkind agaleg vonbrigði þegar Gyldendal tókst að yfirbjóða öll önnur dönsk bókaforlög með svokölluðu pre-empt boði. Alþjóðleg stjarna Fríðu er því hátt á lofti þessa daga.

Exit mobile version