Site icon K A K T U S I N N

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og leslisti ritnefndar

Það þykja alltaf töluverð tíðindi þegar íslenskur rithöfundur vinnur Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs enda mikill heiður að hreppa þessi eftirsóttu verðlaun. Hingað til hafa átta Íslendingar fengið verðlaunin sem stofnað var til árið 1962.

2018: Auður Ava fyrir bókina Ör
2011: Gyrðir Elíasson fyrir bókina Milli trjánna
2005: SJÓN fyrir bókina Skugga-Baldur
1995: Einar Már fyrir bókina Englar alheimsins
1992: Fríða Á. Sigurðardóttir fyrir bókina Á meðan nóttin líður
1988: Thor Vilhjálmsson fyrir bókina Grámosinn glóir
1981: Snorri Hjartarson fyrir bókina Hauströkkrið yfir mér
1976: Ólafur Jóhann Sigurðsson fyrir bækurnar Að laufferjum og Að brunnum

Í ár er það norski rithöfundurinn Niels Fredrik Dahl sem hlýtur verðlaunin fyrir bókina Fars rygg (Bak pabba) og því virðist enginn íslenskur fjölmiðill hafa áhuga á að segja frá verðlaunaveitingunni, eða … Kaktusinn hefur ekki séð neina  umfjöllun um sigur Niels Fredrik Dahls sem þó veitti verðlaununum viðtöku í Reykjavík.

Þetta er lágmælt bók um að rýna í hvaðan maður kemur – öll þau blindu svæði –  og þar með hvernig sjálfsmyndin verður til. Fars rygg er lýsing á því hvernig sonur reynir að skilja pabba sinn í gegnum bréf, teikningar og ljósmyndir. Skáldsagan mun víst vera mjög sérstök hugleiðing um glataða tíma og söknuð.

„Að fá tilnefningu til þessara verðlauna  er auðvitað mikill heiður. Á hverju ári hefur listinn yfir tilnefndar bækur verið yfirlit yfir það besta sem skrifað hefur verið á Norðurlöndunum hvert ár – eða það finnst mér. Tilnefningarnar hafa fengið mig til að lesa bækur sem ég hefði annars aldrei opnað eða kannski beðið með að lesa. Til dæmis Solvej Balle, Joanna Rubin Drager … svo ég nefni bara tvo höfunda. Verðlaunin hjálpar okkur sem skrifum og lesum að hittast og auðvelda okkur til að skilja hvert annað betur.“

Fyrir Íslands hönd voru tilnefndar bækurnar Jarðsetning skáldævisaga eftir Önnu Maríu Bogadóttur og Tól, skáldsaga eftir Kristínu Eiríksdóttur.

Þess má geta að Niels er giftur öðrum rithöfundi, Linn Ullmann, sem þó hefur enn ekki unnið Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs þrátt fyrir alla sína frægð og allar sínar frábæru bækur.

ps. Annars var rætt um það á ritnefndarfundi í morgun, sem að þessu sinni er haldinn í Hvalfirði á Íslandi, hvað ritnefndin er að lesa um þessar mundir:

1) Dulnefnin, smásögur eftir Braga Ólafsson sem einn ritnefndarmanna sagðist vera gífurlega ánægður með.

2) Skálds saga eftir Steinunni Sigurðardóttur sem kom út í síðustu viku. Bókin fær ekki alveg jafn ákaft hrós hjá ritnefndinni eins og bók Braga. Væntingarnar voru sennilega of miklar. Það er eitthvað ópersónulegt við þessa persónulegu sögu Steinunnar sem truflar lesandann.

3) Dóra Bruder eftir Patrick Modiano í þýðingu Sigurðar Pálssonar. Þótt sagan gerist í hinni heittelskuðu París nær hún ekki að lifna fyrir ritnefndarlesaranum. Bókin var lesin í flugvélinni á leið til Íslands í gær og náði því miður ekki að heilla. Þetta er í þriðja sinn sem lesarinn gerir atlögu að þessari bók en hann hefur enn ekki komist lengra en að blaðsíðu 107. Bókin er sögð frábær og höfundurinn hefur unnið Nóblesverlaunin og allt … en samt …

4) Karolinas kærlighed eftir Kim Leine. Kim Leine er byrjaður að skrifa glæpasögur. Þetta er fyrsta bókin í bókaflokki sem skáldið skrifar um Karolinu (bækurnar eru orðnar þrjár) og hann fær satt að segja stórkostlega dóma fyrir þessar bækur í dönsku pressunni. Kim Leine er þekktur hér á landi fyrir bækurnar Kalak og Spámennirnir við Botnleysufjörð í frábærri  þýðingu Jóns Halls Stefánssonar.

 

Exit mobile version