Þessa dagana berast látlaust miklar gleðifregnir hingað á skrifstofu Kaktussins. Að vísu eru það útlendar fréttir og einskorða sig við efnahag nokkurra fyrirtækja á hinum alþjóðlega bókamarkaði. Vonandi berast sambærilegar eða annars konar gleðifréttir frá Íslandi.
Ef til vill getur maður sagt að íslenskir rithöfundur geti fagnað sérstaklega mikið að heyra að nú er Storytel (móðurfyrirtæki þess íslenska Storytel) rekið með umtalsverðum hagnaði. Það er ekki aðeins að hagnaður Storytel á þriðja ársfjórðungi (434 milljónir SEK) sem vekur ánægju heldur líka að velta fyrirtækisins eykst um 7% á sama tíma. Nú ættu íslenskir útgefendur að geta með góðri samvisku herjað á sænska risann og reynt að semja um stærri sneið af kökunni. Eða réttara: íslenskir rithöfundar ættu nú að herja á íslenska útgefendur og setja kröfu um hærri höfundalaunaprósentur fyrir hljóðbækur og knýja þannig útgefendur til að herja á Stoyrtel.
Hinar gleðifregnirnar koma frá stærstu bókaútgáfu Danmerkur, Gyldendal. Öllum að óvörum sendi forlagið út tilkynningu til dönsku kauphallarinnar þar sem boðað var að hagnaður fyrirtækisins í ár verði mun hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Það er gangur í sjoppunni og áralangri efnahagslegri þrautagöngu forlagsins virðist vera lokið.
Nú vonast Kaktusinn að hið íslenska stórforlag, Forlagið, geti brátt boðað sömu efnahagslegu framfarir og Gyldendal. Ef útgáfulisti Forlagsins er skoðaður dofnar aðeins bjartsýni Kaktussins því ekki virðast vera gífurlega margar vænlegar sölubækur á útgáfulistanum: Arnaldur, Gunnar Helgason, Birgitta Haukdal og Nanna Rögnvaldardóttir eiga þó væntanlega eftir að seljast vel. Nægir það Forlaginu í baráttunni?
ps. það vekur athygli þegar ársskýrsla Storytel er lesin að bein útgáfa Storytel (bæði prent og beint í hljóðbók) gengur rífandi vel. Velta útgáfuhluta Stoyrtel eykst um 13% á þriðja ársfjórðungi (hljóðbækur um 18% og prentaðar bækur um 6%).

