Nær flest útgáfufyrirtæki heims líða fyrir alvarlegan peningaskort og kemur það niður á sambandi þeirra við höfunda sína og möguleikum þeirra að fara nýja framsæknar leiðir við útgáfu bóka sinna.

Ný rannsóknir á högum rithöfunda í Englandi sýndi einnig að mjög hefur aukist að höfundar fái höfundalaun sín greidd bæði seint og illa. Sambærilegar rannsóknir í öðrum löndum sýna þessa sömu tilhneigingu.

Á Íslandi eru lífskjör rithöfunda ekki neitt til að hrópa húrra fyrir. Sala bóka er lítil, og fer minnkandi, á litlum bókamarkaði. Höfundalaun fyrir bókasölu er í afar fáum tilvikum efnahagslegur grundvöllur þess að höfundur helgi sig algerlega ritstörfum. Þó búa íslenskir rithöfundar við styrktarkjör sem höfundar í öðrum löndum getað öfundað íslenska höfunda af og gerir styrkjakerfið fleiri rithöfundum að sinna bókaskrifum sem aðalstarfi.

Á Íslandi eru til staðlaðir samningar á milli rithöfunda (RSÍ) og forlaga (FÍBÚT). Í þeim samningi er gert ráð fyrir að uppgjör höfundalauna skuli liggja fyrir eigi síðar en 1. júni næsta ár og greiðsla höfundalaun skv. því fer því fram á sama tíma.

Flestir íslenskir rithöfundar þurfa því oftast að bíða í sex mánuði  (eða fram á sumar) eftir að uppgjöri jólasölu er lokið til að fá söluuppgjör. Það kemur kannski mörgum rithöfundum á óvart að heyra að ársuppgjör forlaga er samt nánast alltaf tilbúið í febrúar þegar virðisaukaskattsuppgjör við íslensk skattayfirvöld þarf að liggja fyrir. Langstærsti hluti endursendinga frá bóksölum er einnig kominn í hús í febrúar og þar með uppgjör jólasölu. Því er þessi langi uppgjörsfrestur furðulegur og á sér enga skynsamlega skýringu. Sem sagt ekkert í uppgjörsferli milli bóksala og forlaga réttlætir hinn langa uppgjörsfrest sem forlögin taka sér gagnvart bókahöfundum. Þar að auki eru uppgjör Storytel gagnvart útgáfufyrirtækjunum mánaðarleg.

Rithöfundar hafa lengi kvartað undan þessum langa uppgjörsfresti en fyrir daufum eyrum forlaga. En lausnin er kannski fundin. Í Svíþjóð hefur nýtt fyrirtæki verið stofnað sem, þrátt fyrir nafnið  – Edda –, færir „forlagsstarfsemina nær nútímanum“.

Ætla stofnendurnir, sem allir hafa langa reynslu í forlagsbransanum, í nýjum tæknilausnum og í nýsköpun, að ýta forlagsbransanum „inn í nútímann“. Markmiðið fyrirtækisins er að „breyta fjármálalandslagi útgáfubransans“ með hjálp gervigreindar og betri aðgang að sölugögnum.

Á þennan hátt getur þetta nýja fyrirtæki boðið bæði höfundum og útgefendum að fylgjast með sölu bóka sinna í rauntíma og greiða út höfundalaun mun hraðar en nú þekkist. Með aukinni upplýsingargjöf stuðlar „Edda að styrkara sambandi milli höfunda og útgefenda“.

Í fyrstu mun starfsemi Eddu eingöngu fara fram í Svíþjóð en ekkert er því til fyrirstöðu að taka aðferðir fyrirtækisins í gagnið á Íslandi til að auka skilvirkni íslenskra forlaga.

ALB fréttaritari Kaktussins í Stokkhólmi.