Á meðan bóksalar víða um Evrópu stilla upp á búðarborðum sínum nýrri bók Michel Houellebecqs Annihilation (Tortíming) sem kemur út í dag, spyrjast út þær fréttir að þetta muni vera síðasta bók rithöfundarins. Þótt Houellebecq sé einungis 66 ára (fæddur árið 1958) telur hann sig vera búinn að fá nóg af að skrifa skáldsögur.
Bókamessan í Gautaborg er stærsta samkoma sinnar tegundar á Norðurlöndum og er sótt af tugþúsundum gesta. Messan byrjar í næstu viku; 26. sept – 29. sept. Sænskir bókaáhugamenn eru þó ekki alánægðir. Á meðan nokkrar deilur hafa blossað upp yfir verðlaginu á bókmessunni, bæði yfir aðgangseyri, sem þykir hafa hækkað úr hófi fram, og yfir leigu á sýningarbásum, undirbýr hinn 86 ára gamli rithöfundur Joyce Carol Oates ferð yfir hafið – alla leið frá New York til Gautaborgar. Hún fékk nefnilega þær fréttir fyrir nokkru að bókamessan ætlaði að veita henni ný bókmenntaverðlaun sem stofnuð eru í tilefni 40 ára afmælis messunnar. „ … afar óvæntur heiður,“ sagði Joyce Carol Oates þegar henni bárust fréttirnar, „og þvílík hvatning. Starf rithöfundarins getur verið einmanalegt og svona viðurkenning er eins og lýsandi kyndill í einsemdinni.“
Á meðan aðdáendur Sally Rooney bíða með öndina í hálsinum eftir að nýja bókin hennar Intermezzo komi út (á þriðjudaginn 24. september) sinnir höfundurinn markaðsstarfi og talar við menningarblaðamenn frá öllum heimshornum um skáldskapinn. Í löngu viðtali við breska stórblaðið The Guardian daðrar hún við þá hugmynd að leggja höfundarstarfið á hilluna. „Það er gott að trúa því að starf rithöfundar geti haft áhrif og geti gert heiminn fallegri og betri. Ég veit ekki hvort það sé rétt. Kannski ætti ég að nota tímann í að gera eitthvað annað, eitthvað gagnlegra. Og það er ekkert ólíklegt að ég snúi mér að því.“
Í sama viðtali þakkar hún manni sínum til margra ára fyrir að gera henni mögulegt að sinna skáldsagnaskrifum. „Hann hefur ekki bara fært mér te og tæmt ruslakörfurnar. Ég var mjög ung þegar ég varð ástfangin af manni sem gerbreytti lífi mínu, og hann heldur því áfram á hverjum degi. Hann hefur gert mér mögulegt að skrifa um fólk sem hefur lent í því að ástin hafi umturnað lífi þess,“ segir hún. „Ég er viss um að án þessarar reynslu hefði ég ekki getað skrifað þær bækur sem mér hefur tekist að berja saman.“ Og hver er þessi draumaprins? Hann heitir John Prasifka og er nú stærðfræðikennari. Hjónin hittust þegar þau stunduðu bæði nám við Trinity College í Dublin. Sally Rooney las ensku og amerískar bókmenntir og lauk mastersprófi þaðan. John stundaði stærðfræðinám.