Á ritstjórnarfundi morgunsins kaffihúsinu við Rue des Amelot var ákveðið að beina sjónum Kaktussins að barnabókmenntum og segja frá því sem nú er hvað heitast á þeim vettvangi.
„Börn sem lesa verða hugsandi einstaklingar á fullorðinsárum. Bara það ætti að nægja til að segja að barnabókmenntir séu mikilvægustu bókmenntir sem til eru. Maður græðir líka heilmikið á að lesa góða barnabók þótt maður sé orðinn fullorðinn,“ segir hin nýja stjarna barnabókmenntanna, Katherine Rundell. Hún skrifað bókin Impossible Creatures sem nú fer mikla sigurför um heiminn.
Impossible Creatures varð algjör metsölubók bæði í Englandi og Bandaríkjunum um leið og hún kom út. Gagnrýnendur báðum megin Atlantshafs líkja Rundell við enga aðra en J.R.R. Tolkien, C.S. Lewis og Philip Pullman. Impossible Creatures var valin bók ársins hjá bókabúðakeðjunni Waterstones, verðlaunum hefur verið hlaðið á bókina og höfund hennar. Þar að auki skrifar New York Times um Katharie í bókakálfi sínum og veltir fyrir sér hvort höfundurinn muni ná sömu hæðum í vinsældum og þau þrjú sem henni er líkt við.
Bókin, Impossible Creature segir segir sögu lítils drengs Christopher Forrester, sem fyrir slysni villist til eyjaklasa sem er í álögumþ Þar býr urmull allskonar furðudýra. ´Á eyjunni hittir hann Mal Arvorian, stúlku sem þar er fædd og hefur hæfileika til að fljúga. Saman komast þau að því að galdur eyjunnar er að hverfa og þar með deyja dýr eyjarinnar. Christopher og Mal leggja því saman í leiðangur til að bjarga eyjunni.
„Það er svo frábært að tala við börn um stórar hugmyndir í gegnum skáldskap. Í skáldskap getur maður rætt stjórnmál, völd, spillingu, umhyggju og að taka ráðin í sínar hendur. En hins vegar er það alveg glatað að troða einhverri siðferðispredikun inn í sögu til að reyna að skapa siðferðiskennd,“ segir hinn nýi stjörnuhöfundur.
