Í Slóvakíu eins og víðar situr hægrisinnuð stjórn svokallaðra „popúlista“. Popúlistar þurfa ekki endilega að vera hægrisinnaðir eins og í Slóvakíu, þeir geta líka verið vinstrisinnaðir og er ekki stór munur á þessum tveim fylkingum. En í Slóvakíu hafa hæstráðendur komist að því að það „sé fyrst og fremst fólk með auraráð sem kaupir bækur“ og því sé ekkert því til fyrirstöðu að hækka virðisaukaskatt á bókum úr 10% í 25%. Verður hann því hækkaður í næstu viku.
Í heiminum eru mörg sterk öfl sem með fullum ásetningi finna leiðir til að slökkva áhuga almennings á list og menningu og gera sitt til þess að slíkur áhugi vakni ekki hjá börnum. Mikið er nú dapurlegt að hugsa um afleiðingar þessa.
Slóvakíu eða Slóveníu?
Vel athugað. Slóvakía á þetta að vera.