Rétt í þessu blikkaði HOT-LINE skynjarinn hér á ritstjórnarskrifstofu Kaktussins. Eins og Kaktusinn hefur lofað birtast þau tíðindi sem berast eftir HOT-LINE línunni án ritstjórnar, án tafar og í fullum trúnaði við the whistleblower eða lanceur d’alerte eins og maður segir á frönsku.
Helsinki,
18. september 2024, 15:04 GMT+3
„Nýja bók Michel Houellebecq – Annihilation – er komin út á ensku í Finnlandi! Áætluð útgáfa bókarinnar í Evrópu er ekki fyrr en á morgun og í október í USA! Engu að síður er bókin nú komin á borð Rosebud-bókabúðakeðjunnar í Helsinki!“