Site icon K A K T U S I N N

Hvað er Hannibal að bralla?

Það reyndist hin besta skemmtun að horfa á 3 Body Problem seríuna á Netflix byggða á samnefndri sögu sci-fi hetjunnar kínversku, Liu Cixin. Ég náði að horfa á tvo fyrstu þættina í fluginu frá Kaupmannahöfn í gær. Þóttu mér þættirnir nógu áhugaverðir til að ég keypti bókina á Amazon og er núna komin með hana inn á iPadinn minn.

Annars las ég það í New York Times að um þessar mundir séu liðin 25 ár frá því að Hannibal, eftir Thomas Harris, ein mesta metsölubók allra tíma, kom út. Thomas Harris hafði vakið athygli með bókinni með frábæra titilinn The Silence of the Lambs sem kom út árið 1988. Þótti aðalpersóna bókarinnar Hannibal Lecter svo vel heppnuð að forlag höfundarins ákvað að skrifa undir tveggja bóka samning við rithöfundinn og greiða honum svimandi háa upphæð á þeim tíma, um 6 milljónir dollara. Forlagið var þó fljótt að fá þessa fjárfestingu til baka því árið 1991 var kvikmynd byggð á The Silence of the Lambs frumsýnd. Kvikmyndin gerði Hannibal Lecter (Anthony Hopkins lék hann) að einum eftirminnilegasta skúrki kvikmyndasögunnar og setti kvikmyndin hvarvetna aðsóknarmet.

Það er mjög sjaldan að rithöfundur verði fyrir þeirri reynslu að beðið sé eftir nýjum bókum frá þeim en þar var mjög mikil eftirvænting eftir nýrri bók um Hannibal Lecter. Ritstjóri Thomas Harris hét Carole Barron og hún hafði starfað áratugum saman hjá Dell útgáfunni. Hún reyndi mjög að fá Thomas til að skrifa í snarhasti nýja bók um mannætuna og fagurkerann Hannibal. Það væru milljónir lesenda sem biðu í spenningi eftir að heyra meira um Hannibal. Ritstjórinn og höfundurinn hittust af og til og borðuðu hádegismat saman. Thomas reyndi að hraða sér en hann var seinvirkur höfundur og  gat ekki skrifað hratt. Hann fullvissaði þó ritstjórann um að hann væri að vinna að bókinni og það kom fyrir að hann lagði fram einn og einn kafla máli sínu til stuðnings og til að sýna hvernig verkinu miðaði. Árin liðu og Thomas hélt áfram að dunda sér við að skrifa nýja bók eða réttara sagt kvaldist hann yfir skriftunum. „Ég engist um á gólfinu,“ sagði hann einu sinni þegar hann var spurður um sjálft ritferlið. „Mér finnst mjög erfitt að skrifa.“

Á endanum tókst Thomasi að komast á leiðarenda í skrifum sínum. Og þann 23. mars árið 1999 – átta árum eftir að The Silence of the Lambs kom út – afhenti Thomas ritstjóra sínum 600 síðna handrit að bókinni Hannibal á American Hotel í höfninni í Sag í New York fylki eða 200 km austur af Manhattan.

Þegar Carole kynnti bókina fyrir sölumannaliði Dell útgáfunnar daginn eftir brutust út mikil fagnaðarlæti. „Fólk spratt á fætur og fagnaði ógurlega,“ sagði Carol í viðtali við New York Times. „Ég fékk líka mikinn blómvönd frá Barnes & Nobles-bókabúðakeðjunni. Eftirvæntingin og tilhlökkunin var svo mikil.“ Þótt bókin fengi fremur dræma dóma hjá gagnrýnendum seldist bókin í áður óheyrðum upplögum.

ps. Hinn nýdæmdi sakamaður, Donald Trump, mun víst telja sig mikinn aðdáanda Hannibal Lecters og talar stundum um hann í ræðum sínum en segir alltaf „Hannibal Lecter heitinn“. En þar, eins og stundum áður, fer Donald ekki alveg með rétt mál. Hannibal Lecter hefur aldrei dáið og mun Thomas Harris meira að segja hafa sagt frá því í nýlegu viðtali (hann veitir nánast aldrei vitöl) að hann íhugi stundum að skrifa nýja bók um Hannibal og velti því meira að segja af og til fyrir sér hvað Hannibal sé að bralla um þessar mundir.

Exit mobile version