Site icon K A K T U S I N N

Í sjálfu sér.

Það telst helst til tíðinda í Kaktusheimum að ritstjórnin hefur flutt bækistöðvar sínar til Íslands og mun starfa á íslenskri grund næstu sex vikur. Það breytir sennilega ekki miklu; ritstjórnin er hvorki nær né fjær iðu atburðanna.

Sally Rooney (Fagri heimur hvar ert þú?, Eins og fólk er flest, …) hefur skilað af sér handriti að nýrri bók sem hefur fengið titilinn Intermezzo á enskri tungu. Verður bókin gefin út í tugum landa samtímis í september – líka á íslensku ef ritstjórn Kaktussins skjátlast ekki. En sjálft útgáfuferlið er ekki það sem heillar Sally Rooney og gælir hún hvað eftir annað við þá hugmynd að birta ekki þær skáldsögur sem henni tekst að sjóða saman: „Næst þegar ég skrifa bók, ætla ég alls ekki að gefa hana út,“ sagði hún í samtali við The New York Times ekki fyrir löngu. En bætti svo við að hún yljaði sér alltaf við þessa hugmynd þegar útgáfudagur nálgaðist. En samtímis ýjar hún að því, sem ekki er fjarri mögum rithöfundum, að útgáfa bóka sé kannski ekki sá gleðigjafi sem það ætti að vera.

„Það verður enginn glaður á að gefa út bók,“ sagði ungur rithöfundur um daginn á kaffihúsi í Reykjavík þar sem hann ræddi stöðu og horfur í listheimum, og bætti við: „hvorki útgefandinn (sem hugsar með sér ‘enn ein bókin’), höfundurinn sem telur sig aldrei fá þá athygli, aðdáun og ást sem hann eigi skilið og sjaldnast lesendur ef þeir yfirhöfuð finnast.“ Mörgum þykir þetta neikvæð og svartsýn afstaða en ber þó óneitanlega í sér sannleikskorn.

Í nýrri bók Þriðja ríkið: leikur Karl Ove Knausgård sér með þessa sömu hugsun að listsköpun sé takmarkið í sjálfu sér, ekki útbreiðslan. Þar segir meðal annars frá hinni dularfullu en framúrskarandi og mögnuðu dauðarokkshljómsveit Domen sem spilar tónlist sína nær eingöngu fyrir sjálfa sig. Af og til halda þeir þó tónleika fyrir fáa útvalda langt inni í skógi  og gefa út tónlistina á kassettum þar sem upplagið er þrjú eintök.

ps. Ritstjórn getur ekki annað en mælt með Þriðja ríki, Knausgårds. Bókin er að vísu ekki til á íslensku en fæst a.m.k. á ensku, dönsku og norsku.

 

Exit mobile version