Rétt í þessu blikkaði HOT-LINE skynjarinn hér á ritstjórnarskrifstofu Kaktussins. Eins og Kaktusinn hefur lofað birtast þau tíðindi sem berast eftir HOT-LINE–línunni án ritstjórnar, án tafar og í fullum trúnaði við the whistleblower eða lanceur d’alerte eins og maður segir á frönsku.
Kaupmannahöfn,
28. september 2024, 08:23 GMT+1
Intermezzo eftir Sally Rooney tekur nú hvarvetna á móti viðskiptavinum í dönskum bókabúðum. Í dag mátti krækja í kiljueintak á 144 danskar krónur (eða 2925 ISK) í Politiken Boghal. Sama kilja kostar nú 5399 ISK í Eymundsson. Munurinn er 2474 ISK. Þetta vekur áríðandi spurningar – því hotline – er bókaverð of hátt á Íslandi?
Svar frá ritstjórn: Umræðan um hátt bókaverð á Íslandi hefur lengi grasserað. Dæmið sem hér er tekið er kannski ekki alveg sanngjarnt gagnvart íslensku bókaverði því nýútgefnar, íslenskar kiljur (Hnífur, Salman Rushdie, Mandla, Hildur Knútsdóttir, Hildur, Satu Rämö) kosta allar 4.290 ikr. Bók Sally Rooney sem sýnd er á myndinni hér að ofan er innflutt bók.
Hins vegar. Eins og alþjóð veit liggur útsöluverð bóka til grundvallar höfundarlaunum. Bókaverð er því grunnur þeirra launa sem rithöfundar fá fyrir verk sitt.
Kilja sem kostar 4.290 ikr ber 11% vsk.
Verð kilju er því án vsk. 3.865 ikr.
Verð frá forlagi til bókabúða er því um 2.318 ikr.
Höfundalaun (það sem kemur í hlut höfundar) af sölu einnar bókar eru skv. samningum (23%) ca. 533 ikr.
Sala á 1000 bókum skilar höfundi 533.000 ikr.
Ritnefnd hefur alltaf undrað sig á því verðmætamati á Íslandi að bók megi ekki kosta neitt. Það er eins og ekki sé hægt að sjá sanngirnina í verðlagningu á bókum. Hagnaður bókaútgáfu á sölu 1000 bóka á verðinu 4.290 er í flestum tilvikum agnarlítill. Það er því ekkert undarlegt að flest forlög á Íslandi berjist í bökkum.
Á bak við hverja bók liggja ótal handtök og vinnustundir, bæði hjá höfundi, ritstjóra, þýðanda, prófarkalesara, kápuhönnuði, lay-out-manni, prentara, bókbindara, fragtmönnum, lagerstjóra, dreifingaraðilum, bóksölum … auk alls þess pappírs og prentsvertu sem notuð er í framleiðslu einnar bókar. Til samanburðar kostar ein pizza hjá Dominos eins og til dæmis hin vinsæla „Pepperoni Veisla“ nákvæmlega það sama og bók Salmans Rushdies Hnífur: 4.290 ikr.
Ritnefnd getur fullyrt að handtök og vinnustundir við gerð einnar pizzu eru færri en við að fullbúa bók til sölu. Hins vegar hefur ritnefnd ekki orðið var við háværar umræður um verðlagningu á einni pizzu. Hvort er verðmætara ein pizza af gerðinni „Pepperoni Veisla“ (dæmi um pizzu) eða Hnífur, Salmans Rushdies (dæmi um bók)?
Það er eins og bókakaupendur sjá eftir hverri krónu sem fer í bókakaup en á sama tíma getur þetta sama bókelska fólk keypt sér eina pizzu á sama verði og ein bók án þess að blikka auga eða efast um réttmæti verðlagningar pizzunnar.

