Það þótti sæta nokkrum tíðindum í helgarlífinu í Reykjavík að opnuð var ný bókabúð á Vesturgötu. Það er ekki á hverjum degi sem ný bókabúð sprettur upp í höfuðborginni. Opnun búðarinnar hefur verið í bígerð í nokkurn tíma og á biðtímanum hefur myndast óvenju góð stemmning fyrir þessum nýja bóksölustað. Búðin heitir Skálda og býður upp á nokkuð úrval íslenskra og útlendra bóka. Á opnunarhátíð búðarinnar var töluvert fjölmenni sem fagnaði mjög þessari nýjung í menningarlífi bæjarins. Nú er mikill bóksölutími í nánd og verður spennandi að sjá hvort þessi litla búð, Skálda, haldi velli þegar jólin eru liðin og hið hversdagslega og oft tíðindalausa bókalíf í Reykjavík tekur við. Þá reynir á hugvit og styrk hinna nýju bóksala.
Önnur bókabúð, ögn óhefðbundnari, vakti athygli Kaktussins á ferðum sínum um London. Búðin heitir The Poetry Pharmacy. Búðin opnaði fyrst árið 2011 í sjúkrabíl undir heitinu The Emergency Poet og hafði það að markmiði að miðla ljóðum í lækningaskyni. Í stað þess að skrifa út lyfseðil með meðalaskammti voru skrifuð út eða afhent ljóð sem áttu að vera markviss og viðeigandi lækningamiðill gegn þeim kvillum sem hrjáðu þá sem leituðu til sjúkrabílsins. Ljóðin voru afhent í pilluglösum. Í búðinni er viðskiptavinum boðið upp á notkunarleiðbeiningar eða vegvísa eftir t.d. Derek Walcott og Elisabeth Bishop (ljóðskáld) í staðinn fyrir svefnpillur og multivítamin.
Fyrir ekki löngu lögðu eigendurnir sjúkrabílnum sem þau höfðu keyrt á milli bókmenntahátíða og annarra bókmenntaviðburða alveg frá árinu 2011, og komu The Poetry Pharmacy undir þak. „Eina leiðin til að reka bókabúð þar sem bókmenntir og ljóð eru í forgrunni er að blanda saman leik, leikhúsi og viðskiptum. Þessi tegund bóksölu er listform, einn langur listgjörningur,“ sögðu ljóðskáldin tvö sem eiga og reka The Poetry Pharmacy við tíðindamann Kaktussins sem heimsótti búðina.
The Poetry Pharmacy stendur ekki aðeins fyrir bóksölu og útskrift læknandi ljóða heldur eru líka allskyns bókakynningar og bókmenntaviðburðir á dagskrá búðarinnar. „Drifkraftur þessa verkefnis hefur alltaf verið að koma ljóðum til fólks sem venjulega er ekki í tengslum við ljóð. Við bjóðum fólk velkomið inn í veröld ljóðsins og þvingum ekki neinu upp á neinn. Við viljum breyta þeirri sýn fólks að ljóð séu eitthvað erfitt og undarlegt. Ljóð geta verið lækningalyf, hamingjumiðill og orkuskot. Leikurinn og gleðin er það sem drífur þessa búð. Stundum líkist búðin meira leikhúsi en virðulegri bókabúð.“
„Rúnar Helgi Vignisson er sigurvegari haustsins, algjörlega,“ sagði tíðindamaður Kaktussins í stuttu bréfi til ritstjórnar. „Bókin hans, Þú ringlaði karlmaður, er mikið í umræðunni og flestir sammála um að Rúnari hefur tekist að skrifa fína bók um eldfimt efni.“ Rúnar Helgi gefur sjálfur út bókina sína undir forlagsnafninu Gula húsið. Nokkrir heimildarmenn Kaktussins hafa bent á að fleiri virtir og viðurkenndir rithöfundar hafa undanfarna mánuði íhugað að yfirgefa forlög sín og gefa út á eigin vegum en ekki á vegum hefðbundinna forlaga. Sem dæmi má nefna að jafn frægur höfundur og Bragi Ólafsson velur að gefa út á vegum plötu- og tónlistarfyrirtækisins Smekkleysu. Útgáfa bóka og dreifing þeirra í bókabúðir og til streymisveitna þykir ekki lengur tiltökumál. Þar að auki hafa sum af forlögunum, vegna efnahagsþrenginga og „lausafjárvanda“ , fækkað þeim titlum sem þykja efnahagsleg áþján. Hafa því óþekktari höfundar átt í erfiðleikum með að fá forlögin til að taka við bókum sem eiga minni möguleika á sölu. Gefa þeir því út bækur sínar sjálfir.
