Fundur ritnefndar Kaktussins var haldinn á Café Babaka Zana rétt við Batman-íbúðina á Rue des Tournelles og í þetta sinn voru allir ritnefndarmeðlimir mættir á réttum tíma (08:30) og sestir með kaffibollann sinn þegar fundur hófst.

Fyrsta mál á dagskrá var hin nýja stefna Heimildarinnar (sem er vefrit og prentað vikublað). Á undanförnum mánuðum hefur Heimildin hálfvegis tekið forystu í umfjöllun um bókmenntir á Íslandi og er það fyrst og fremst að þakka útgáfu bókablaðsins fyrir jól. Þetta bókablaðs-framtak Heimildarinnar (sem kannski ekki er miðill fullur af fjöri og sprelli) er sérstaklega gleðilegt. Síðustu vikur hefur það vakið ánægjulega undrun ritnefndar Kaktussins  að Heimildin hefur farið algjörum hamförum í  viðamikilli  umfjöllun  um Salman Rushdie. Sjaldan fyrr hefur íslenskur miðill tekið rithöfund jafn opnum örmum og Heimildin hefur gert í tilviki Salmans Rushdies. Umfjöllunin um  þennan breska heiðursmann hefur verið einstaklega ítarleg og varla hefur liðið sá dagur að Salman Rushdie sé ekki nefndur á nafn í miðlinum. Árni Óskarsson, þýðandi Rushdies skrifaði fína yfirlitsgrein um höfundinn, Guðmundur Andri góðan ritdóm um Hníf, Auður Jónsdóttir tók viðtal við Salman Rushdie, Halldór Guðmundsson, fyrrum útgefandi, tók viðtal við norska útgefandi Rushdies um norsku útgáfuna á Söngvum Satans, Auður Jónsdóttir tók viðtal við Halldór Guðmundsson um íslensku útgáfuna á Söngvum Satans og í gær beindi Heimildin lesendum sínum á streymi af fyrirtaksgóðu viðtali Halldórs og Höllu Oddnýjar Magnúsdóttur við rithöfundinn í tilefni af veitingu bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness fyrr í mánuðinum.

Það er ekkert annað en gott um þetta að segja og ritnefnd Kaktussins vonar að í framtíðinni bjóði Heimildin fleiri rithöfunda jafn velkomna og taki þá á sama hátt í faðm sinn. Bráðum koma jólin með allar sínar nýju bækur og þá er enginn skortur á framboði af rithöfundum (sérstaklega íslenskum) með titrandi hjarta sem þrá að komast í hlýjan og kærleiksríkan faðm.

Kaktusinn mun fylgjast með hverjir lenda í náðarfaðminn af áhuga og tilhlökkun.