Albert Einstein, eðlisfræðingurinn frægi, lifði fremur litríku ástarlífi ef marka má þá sem ritað hafa ævisögu hans. Hann notaði meira að segja stærðfræði til að skilja ástarlíf sitt. Tími og rúm geta verið afgerandi áhrifavaldar í ástarlífinu, það uppgötvaði Einstein ungur að árum. Albert Einstein giftist Elsu Löwenthal skömmu eftir skilnað sinn við stærðfræðinginn Milevu Maric. Elsa var ekki sérlega heilsuhraust og dvaldi of langdvölum á heilsulindum í Sviss á meðan eðlisfræðingurinn sinnti rannsóknum sínum í Berlín og annars staðar í heiminum. Í bréfi til Elsu skrifar Einstein: „Að skrifa er heimskulegt því á sunnudaginn kyssi ég þig munnlega. Sunnudagurinn er nefnilega kvaðratrótin af kossi sinnum tími.“
Kvaðratrótin af kossi sinnum tími

