Site icon K A K T U S I N N

Síðast en ekki síst.

Undanfarna daga hefur New York birt lista sem menningarblaðamennirnir á dagblaðinu hafa tekið saman yfir þær eitt hundrað mikilvægustu og áhrifamestu  bækur þessarar aldar (síðustu 25 ára). Til þess að setja saman þennan lista hafa blaðamennirnir fengið til liðs við sig  fjölmarga menningarvita og fengið þá til að nefna,  hvern fyrir sig, þær 10 bækur (útgefnar eftir 1. jan 2000) sem þeir telja að hafi verið bestar.

Það eru mörg fræg nöfn á lista valnefndarinnar. Meðal annars, til að nefna nokkra:  Stephen King, Sarah Jessica,  Parker James Patterson, Roaxanne Gay, Nick Hornby og Karl Ove Knausgård. New York Times er smám saman að birta listann (10 bækur á dag) og  hafa nú þegar birt bækur sem lenda milli 60 og 100 yfir bestu bækur áratugarins.

Svona listar eru auðvitað einungis til skemmtunar fyrir áhugamenn um bókmenntir en það gladdi ritnefnd Kaktussins svolítið að sjá bókaval Karl Ove Knausgård sem nú er í miklu uppáhaldi hér í höfuðstöðvunum. Meðal bóka sem Karl Ove hefur valið fyrir New York Times listann er 2666 eftir Bolano, Small Things Like These eftir Claire Keegan, The Days of Abandonment eftir Elena Ferrante og síðast en ekki síst, Never Let Me Go eftir Kazuo Ishiguro.

Flott val, Karl Ove!

 

 

Exit mobile version