Fyrir nokkrum dögum kláraði New York Times að birta lista sinn yfir þær 100 bækur sem völdust sem bestu, áhugaverðustu eða skemmtilegustu bækur 21. aldar. Aðferðin sem New York Times beitti til að búa til þennan lista var einföld. 503 rithöfundar, skáld, gagnrýnendur og bókaáhugamenn völdu hver um sig 10 bækur sem þau töldu eiga heima á slíkum lista. Síðan var reiknað og listinn settur saman.

Sú bók sem hlaut „flest atkvæði“  og því valin besta, skemmtilegasta, athyglisverðasta bók aldarinnar var bók hins ítalska rithöfundar Ellena Ferrante, Framúrskarandi vinkona, sem er fyrsta bókin af fjórum í Napólí-seríu höfundarins.

Eins og oft þegar slíkir skemmtilistar eru settir saman getur niðurstaðan valdið miklu hugarangri meðal bókmenntaáhugamanna. Það sýður á sumum sem ekki geta sætt sig við niðurstöðuna. „Hvaða djók er þessi listi?“ eru algeng viðbrögð eða „…efast um að mikið mark sé takandi á lista yfir bestu bækur þessarar aldar sem setur vélskilundið ólífuolíuhrat gervimennisins Elenu Ferrante sem hátind bókmenntasköpunar síðustu 24 ára.“

En niðurstaðan er þessi. Það er augljóst að nógu mörgum af hinum 503 áhugamönnum um bóklestur finnst bók Ferrante svo góð og áhugaverð að hún lenti á toppnum og kannski engin ástæða til að hneykslast eða deila um þann smekk eða smekk yfir höfuð.

Listinn er forvitnilegur og ekki gerður til annars en að skemmta lesendum New York Times og kannski vekja áhuga þeirra á þeim bókum sem lenda á þessum fína lista.

Hér er listinn í heild sinni.

En svo gerðist það að fjölmargir  lesendur NYT sendu blaðinu viðbrögð sín við bókavalinu. „Hvar er Sally Ronney?“ „Hvar er Laura Groff?“ „Hvar eru barnabækurnar?“… og á endanum fékk NYT lesendur sína til að taka þátt í gerð nýs lista þar sem lesendur velja 10 bækur sem þeir vilja á listann yfir bestu, skemmtilegustu eða áhugaverðustu bækur 21. aldar.

Niðurstaðan var sú að 39 bækur sem voru á fyrri listanum rötuðu inn á lista lesenda en 61 ný bók lenti á þessum nýja 100 bóka lista. Sú bók sem nú lenti í efsta sæti listans er skáldsaga eftir Barbara Kingsolver, Damon Copperhead, sem kom út árið 2022 og vann Pulizer verðlaunin árið 2023. Sagan byggir á eða er undir áhrifum frá hinni klassísku sögu Charles Dickens, David Copperfield.

Hér er lesendalistinn.