Það vakti athygli lesenda danska dagblaðsins Politiken um daginn þegar ein af stóru sleggjunum í gagnrýnendastétt landsins; Bjørn Bredal, útdeildi hæstu einkunn, sex hjörtum, til bókar Einars Más Guðmundssonar, Því dæmist rétt vera, sem kom út á Íslandi í fyrra og í Danmörku nú í sumar. Dagblaðið Politiken er sá danskur miðill sem sinnir bókmenntum og annarri menningu best af öllum dönskum fjölmiðlum og þykir marktækastur á menningarsviðinu. Að gefa fullt hús á síðum Politiken er fremur fátítt og því galopna slíkir dómar augu bókmenntaáhugamanna í landinu.
Og hjörtunum sex fylgja mikil og hástemmd lofsyrði. „Þetta er meistaraleg frásögn“ … „algerlega framúrskarandi saga af afbrotum“ …Og niðurlag dómsins: „Því dæmist rétt vera, er sögð af miklu örlæti … – í mótsögn við allt það níska, vannærða og smálega. Þess vegna finnst mér svona gjafmild skáldsaga eiga skilið öll mín hjörtu.“
Einar Már hefur lengi haft hálfgerðan stjörnustatus í Danmörku og er sennilega sá íslenski höfundur sem er best þekktur í landinu. Þótt Einar Már njóti kannski ekki lengur sömu vinsælda á Íslandi og þegar Englar alheims komu út – vinsældir manna eiga það til að sveiflast mjög – er fátt sem skyggir á velgengni hans í Danmörku. Hann á það enn til að fylla dönsk samkomuhús þegar hann mætir til að tala um verk sín og vekur hann jafnan mikla hrifningu.
Eldri kona sem hafði verið viðstödd einn af bókmenntafundum Einars Más og hlustað á erindi hans sem hann flutti á sinni sérstöku dönsku sneri sér að vinkonu sinni á leið út: „Mikið var þetta skemmtilegt hjá Guðmundssyni. En ég vissi ekki að ég skildi íslensku.“