Það fer ekki á milli mála að ensku Booker-verðlaunin í bókmenntum eru ein af heimsins eftirsóttustu og mikilvægustu bókmenntaverðlaunum. Skáldsögur sem skrifaðar eru á ensku og koma út í Englandi og Írlandi eiga möguleika á að hreppa verðlaunin. Bandarískir höfundar, nýsjálenskir og ástralskir eru því gjaldgengir, komi bækur þeirra út í Englandi eða Írlandi.
Í gærkvöldi, á meðan Auður Ava Ólafsdóttir fyllti Svarta demantinn í Kaupmannahöfn þar sem 400 manns fengu miða (en fjölmargir þurftu frá að hverfa) og Jón Kalman Stefánsson fyllt Roskilde dómkirkju þar sem hann ræddi um bók sína Gula kafbátinn sem kom út í Danmörku fyrir nokkru, tilkynnti dómnefnd Booker-verðlaunanna hvaða sex bækur væru útnefndar á hinn mikilvæga „short-list“ verðlaunanna.
Það var sérstaklega tekið fram – eins og kyn rithöfunda skipti meginmáli – að í ár væru fimm konur tilnefndar og einn karl. En þetta mun vera í fyrsta sinn í 55 ára sögu Booker-verðlaunanna að kynskipting höfunda er á þennan veg; fimm á móti einum.
Hin tilnefndu eru:
-
Percival Everett, “James”
-
Samantha Harvey, “Orbital”
-
Rachel Kushner, “Creation Lake”
-
Anne Michaels, “Held”
-
Yael van der Wouden, “The Safekeep”
-
Charlotte Wood, “Stone Yard Devotional”
Þann 12. nóvember verður svo hinn endanlegi vinningshafi fundinn. Mestar líkur eru á (skv. úttekt sérfræðinga) að skáldsagan James eftir Percival Everest hreppi verðlaunin. Einnig virðast sérfæðingar sammála um að Orbital eftir Samantha Harvey gæti komið á óvart og verið valin Booker-bók árins.
Höfundarnir: Uppi frá vinstir: Percival Everett, Samantha Harvey, Rachel Kushner, Anne Michaels, Yael van der Wouden, Charlotte Wood.

