Næstkomandi fimmtudag tilkynnir dómnefnd Booker-verðlaunanna hvaða tólf bækur hafa verið útnefndar til þessara eftirsóttu verðlauna. Allar þær bækur sem hafa verið skrifaðar á ensku og útgefnar í Englandi eða Írlandi á tímabilinu 1. október 2023 til 30. september 2024 eru gjaldgengar. Valferill dómefndarinnar er langur og gæti verið lærdómsríkur fyrir íslenska verðlaunastjórnendur.
Eftir að þær tólf bækur sem verða tilnefndar til hins svokallaða „long-list“ hafa fengið að draga til sín athygli umheimsins í um það bil sex vikur kallar dómnefndin til nýs fundar til að tilkynna hvaða sex bækur (af þeim tólf) komast áfram á „short-list“. Útnefning til „short-list“ fer fram við hátíðlega athöfn þann 16. september og hljóta höfundar tilnefndu bókanna hver um sig tæpar 500.000 krónur í heiðurslaun. Lokaathöfnin, þar sem sjálf verðlaunin verða tilkynnt og afhent, fer fram þann 12. nóvember og hlýtur vinningshöfundurinn dágóða verðlaunaupphæð eða um 9.000.000 krónur.
Þegar eru áhugamenn um verðlaunin farnir að velta fyrir sér hvaða bækur rata á Booker-listana. Sú bók sem oftast er nefnd sem líkleg vinningsbók er skáldsagan James eftir Bandaríkjamanninn Percival Everett sem er einskonar viðbrögð við hinni klassísku skáldsögu Huckleberry Finn en sögð frá sjónarhorni þrælsins Jim.
Aðrar bækur sem einnig þykja koma til greina sem verðlaunabækur eru bók írska rithöfundarins Colm Tóibín sem heitir Long Island og er framhald frægustu bókar hans Brooklyn sem kom út fyrir meira en áratug. Nýja bók Sally Rooney, Intermezzo, er líka oft nefnd sem líkleg vinningsbók. Tvær bækur eftir fremur óþekkta höfunda gætu komið á óvart. Það er annars vegar glæpasagan Cahokia Jazz eftir Francis Spufford og hins vegar stutt og „undurfalleg“ bók eftir Samantha Harvay sem heitir Orbit og fjallar um líf sex geimfara í geimfari sínu sem sigla eftir sporbaug jarðarinnar og safna vísindagögnum um veðurfar og gera vísindatilraunir sem reyna á mörk líkamans.
Dómnefnd Bookerverðlaunanna er skipuð fimm einstaklingum. Edmund de Waal (formaður) sem er leirkerasmiður og rithöfundur og þekktastur fyrir bókina Hérinn með rafgulu augun (The Hare with the Amber Eyes). Sara Collins, rithöfundur. Justine Jordan, bókmenntaritstjóri og bókmenntagagnrýnandi hjá The Guardian. Yiyun Li, rithöfundur og Nitin Sawhney, tónlistarmaður, menningarfrömuður og pistlahöfundur. (Þeir sem hafa áhuga á skiptinum milli kynja og starfa: 3 konur, 2 karlar. 3 rithöfundar, 1 tónlistarmaður og 1 ritstjóri og gagnrýnandi)