Á árunum 2009 til 2011 skrifaði Karl Ove Knausgård sex umdeildar bækur undir heitinu Min kamp. Þetta urðu um það bil 3000 blaðsíður þar sem höfundurinn lýsti lífi sínu í smáatriðum með það að markmiði að ná tökum á lífi sínu, skilja rithöfundarmetnað sinn og velta fyrir sér þýðingu listarinnar í samfélaginu.
Í einhverju af þeim viðtölum sem Karl Ove veitti eftir að hafa skrifað bækurnar sex – og þær ollu miklu fjaðrafoki vegna þess hversu opinskátt hann skrifaði um nafngreint fólk; ættingja og vini – talaði hann um hvaða þýðingu útgáfan hafði á lífi hans.
„Það er ekki sársaukalaust að opinbera líf sitt: Sýna úr hverju maður er gerður og gefa aðgang að öllu því sem maður hefur hugsað, skilið og misskilið. Öllu sem maður hefur dreymt um, hatað, fyrirlitið, elskað og þráð. Í stuttu máli að sýna hver maður er – sýna alla sína bresti og vangetu og þar að auki í bók sem verður prentuð og gefin út svo allir geta lesið og hugsað sitt.“