Í gær boðaði dómnefnd Booker-verðlaunanna til blaðamannafundar til að tilkynna hvaða bækur höfnuðu á hinum þrettán bóka „long-list“ og valið kom að sumu leyti á óvart. Í fyrsta lagi þótti það sæta tíðindum að hin stóra ungstjarna bókmenntanna, Sally Rooney og bók hennar Intermezzo, skyldi ekki rata á listann en skáldsagan er væntanleg í bókabúðir um víða veröld þann 24. september – líka á íslensku ef ritnefndinni skjátlast ekki. Einnig þótti það nokkuð fréttnæmt að bók Colm Toibín, Long Island skyldi heldur ekki vera á meðal þeirra þrettán tilnefndu. Og ekki var heldur neina Rachel Cusk að finna en bók hennar Parade kom út fyrr í sumar. Hins vegar eru þær tvær bækur sem fyrirfram þóttu líklegastar til að hreppa Bookerinn, James eftir Perceval Everett og Orbital eftir Samantha Harvey, á lista hinna útvöldu bóka.

Hér er listinn:

  • Colin Barrett, Wild Houses
  • Rita Bullwinkel, Headshot    
  • Percival Everett, James      
  • Samantha Harvey, Orbital       
  • Rachel Kushner, Creation Lake
  • Hisham Matar, My Friends             
  • Claire Messud, This Strange Eventful History               
  • Anne Michaels, Held
  • Tommy Orange, Wandering Stars                    
  • Sarah Perry, Enlightenment             
  • Richard Powers, Playground
  • Yael van der Wouden, The Safekeep
  • Charlotte Wood, Stone Yard Devotional

Af þessum þrettán bókum er engin líkleg til að verða þýdd á íslensku. Sú bók sem hreppti verðlaunin í fyrra, Prophet Song eftir Paul Lynch kom heldur ekki út á íslensku.