Þótt hér í Danmörku hellirigni og svörtu skýin yfir landinu séu þung eins og mjólkurfull beljujúgur er samt enn sumargleði í loftinu. Rétt í þessu barst skrifstofu Kaktussins bréf þar sem segir meðal annars: „Sumarið hefur hreinlega verið dásamlegt. Í gær þegar ég var á leið heim hugsaði ég með mér: „Ég vildi að ég gæti lifað þessa yndislegu sumarmánuði aftur.“
Þrátt fyrir að sumarið sé sérlega góður tími er eins og einhver dvali leggist yfir; afsakið hlé, það er sumar. Og það hefur verið dauft yfir bókaútgáfunni í sumar enda telja forlögin kannski að ekki sé hægt að gera neitt af viti fyrir utan sölutíma bóka, að ekki sé hægt að halda eimreiðinni á hægri ferð. Fréttir af hægfara uppgjöf og samdrætti hjá nokkrum íslenskum forlögum berast hingað. Menntamálaráðherra gerir sitt til að halda listamönnum fyrir ofan hungurmörk með bættum listamannalaunum. Utan úr heimi heyrist af lokun bókabúða í Þýskalandi, gífurlegu tapi hjá bókaforlögum á Norðurlöndum. minnkandi sölu á prentuðum bókum … En þrátt fyrir þetta, eins og þruma úr heiðskíru lofti, heyrist að ungur maður ætli sér að opna bókabúð á Vesturgötu 10 í Reykjavík þar sem Bjartur – bókaforlagið – var einu sinni til húsa. Búðin hefur fengið nafnið Skálda. Á Vesturgötunni á ekki eingöngu að selja bækur heldur eru fyrirhugaðir allskyns upplyftandi bókaviðburðir. Þetta eru sannarlega gleðileg tíðindi og uppörvandi. Kaktusinn vonar innilega að þessi „bókmenntamiðstöð“ standi undir nafni, þarna blómstri líf og efli áhuga á bókmenntum.
En það er ekki bara ný bókabúð sem vekur aukna bjartsýni. Á síðustu vikum hafa bæði Eiríkur Örn Norðdahl og Ármann Jakobsson (sem tók sér langþráð frí í sumar) verið duglegir að fjalla á skemmtilegan hátt um bókmenntir á heimasíðum sínum og þannig gert sitt til að halda lífi í léttleikandi umfjöllun um bækur, bókaútgáfu, íslenska tungu, listir og menningu. Með haustinu gerist kannski eitthvað nýtt og skemmtilegt íslensku bókmenntalífi; meiri og fjörlegri umfjöllun um bókmenntir, vandaðri og fleiri ritdómar, fleiri vekjandi og upplyftandi bókmenntaviðburðir …
ps. fréttir af væntanlegum bókum eru farnar að berast hingað á Kaktusinn í stríðum straumum. Vekur það nokkra athygli ritnefndar Kaktussins að Dagur Hjartarson sendir frá sér nýja skáldsögu í haust. Fyrir tveimur árum kom út skáldsagan Ljósagangur sem fékk töluvert lof gagnrýnenda og var tilnefnd til Hinna íslensku bókmenntaverðlauna. Nýja bókin hans Dags kemur út undir forlagsmerki Benedikts en ekki Forlagsins eins og fyrri bækur höfundar. Mun þessi flutningur milli útgáfufyrirtækja víst stafa af tvennu: niðurskurði hjá Forlaginu og miklum og brennandi áhuga Benedikts á höfundarverki Dags.