Fyrir nokkrum vikum setti ritnefnd upp hnapp á heimasíðu Kaktussins sem kallaður er HOT-LINE og var gert ráð fyrir því að þeir sem hefðu bráðafréttir frá bókamarkaðinum og  vildu koma þeim hratt á framfæri gætu þrýst á hnappinn, skrifað skilaboð og lýst þeim atburðum sem mikilvægt væri að flytja lesendum Kaktussins. Þótt vikur séu liðnar síðan þessi ráðstöfun var kynnt hér á síðu Kaktussins hefur enginn enn þrýst á hnappinn. Ekki einn (lesandi). Auðvitað gæti það stafað af því að al-tíðindalaust sé á íslenska  bókamarkaðnum, eða ekkert kalli á snör viðbrögð og hraða útbreiðslu frétta í gegnum heita línu.

En svo gerðist það fyrr í vikunni að Kaktusnum bárust fréttir, nefnilega ekki efir heitu línunni,  heldur öðrum og meira óspennandi farvegi. Sá sem miðlaði tíðindunum í sakleysi sínu er ekki einu sinni búsettur á Íslandi og þekkti lítt til aðstæðna þar, heldur starfar í hinum alþjóðlega umboðsmannabransa. Í óformlegu samtali við ritnefnd sagði hann þau athyglisverðu tíðindi að umboðsskrifstofan Wylie (sem hefur flesta þekktustu rithöfunda heims á sínum snærum: Sally Rooney, Karl Ove Knausgård, Rachel Cusk, Deborah Levy, Kazuo Ishiguro, Salman Rushdie … ) hafi fært höfundinn Sally Rooney frá Benedikt-bókaforlaginu yfir á bókaútgáfuna Forlagið. Nýja bók Sally, Intermezzo, sem von er á í næsta mánuði kemur sem sagt út á íslensku undir merkjum Forlagsins. Skrýtið.

Áratugum saman hefur sú regla gilt á hinum alþjóðlega bókamarkaði  að ef forlag hefur uppgötvað höfund, keypt þýðingarrétt á bók höfundarins, gefið hana út, kynnt höfundinn með sómasamlegum hætti þá hefur forlagið tryggt sér útgáfurétt á næstu bókum höfundarins, óski forlagið þess. Því er það harla óvenjulegt að umboðsskrifstofa skipti um hest í miðri á – það er að segja flytji höfund milli forlaga eftir að bækur höfundarins hafa komið út í landi í nokkurn tíma. En þetta leyfir Wylie sér að gera telji umboðsskrifstofan að höfundur geti fengið fleiri peninga með slíkri aðgerð. Ekki fylgir sögunni hvaða gylliboð Forlagið hefur lagt fyrir Sally til lokka hana frá Benedikt en það er á allra vitorði að umboðsskrifstofan Wylie hefur tileinkað sér þá undarlegu hugsun að alltaf sé stærsta forlag hvers lands besti kostur fyrir höfunda umboðsskrifstofunnar. Sjálfur Andrew Wylie, eigandi umboðsskrifstofunnar, hefur orðað þessa hugsun svo í staðfærðri þýðingu: „Maður selur ekki Mercedes Benz hjá Trabantumboðinu eða Rolexúr hjá skransala.“

Hin tíðindin sem bárust hingað á hina voldugu Kaktusskrifstofu, (þar sem símarnir þagna ekki, ljósritunarvélarnar eru sístarfandi og erilþyturinn nálgast 55 metra á sekúndu) teljast væntanlega BREAKING NEWS eins og það heitir hjá The New York Times. Það hefur oft verið skrifað um það hér á Kaktusnum að stundum sé starf rithöfundarins ekki dans á rósum. Flestir höfundar vita að þótt þeir sitji mánuðum og árum saman yfir vinnu sinni og reyni að búa til svo vandað ritverk að heimurinn eigi eftir að taka andköf þá er næstum aldrei neinn sem bíður eftir bók frá bókarhöfundi. Rithöfundur gæti hætt að skrifa og það breytti engu, hvorki fyrir heiminn né þá lesendur sem hugsanlega þekktu til höfundarins. Þessi einmana starfsstétt stólar því oft á að fá ást, aðdáun og umhyggju frá ritstjórum sínum, eða hjá því forlagi sem þeir gefa bækurnar sínar út hjá. Ef rithöfundur skynjar að þessa umhyggju er ekki að finna hjá útgáfunni sinni getur sótt á hann (höfundinn) ægilegur sjálfsefi og mikil vansæld. Bókaforlögin geta því haft nokkru hlutverki að gegna í að stuðla að heilbrigðu sálarlífi höfunda. Þetta er nú formáli sem á ekki endilega við fréttina sem hér fer á eftir en frá þessu er sagt vegna þess að þessi skortur á gagnkvæmri ást er algengasta ástæða þess að leiðir höfundar og forlags skilja. En ástæður geta líka verið allt aðrar. Fagurfræðilegur ágreiningur, persónulegur ágreiningur, óánægja með andrúmsloft á forlagsstation, óánægja með afstöðu höfundar … o.s.frv.

Um nokkurt skeið hefur Bragi Ólafsson gefið út bækur sínar hjá bókaforlaginu Bjarti og þar útkom síðast bók hans, Gegn gangi leiksins, árið 2022. Nú í haust er væntanleg ný bók frá Braga sem lýst hefur verið sem „Bragalegri sjálfsævisögu“. Kaktusinn getur ekki annað sagt en að eftir slíkri bók bíði ritnefndin með miklum spenningi. Í þetta sinn verður það þó ekki bókaforlagið Bjartur sem fær ánægjuna af því að sjá um útgáfu á bók Braga heldur verður það listamannafélagið Smekkleysa sem tekur að sér að koma bók Braga í verslanir fyrir jól.

Svona er nú staðan rétt áður en jólabókaflóðið skellur á landsmenn.