Eftirfarandi frásögn eru minningarorð Jóns Kalmans Stefánssonar um Guðberg Bergsson:
„Við Guðbergur mættumst í skáldskapnum, í senn bókstaflega og óvenjulega.
Það var líklega snemma vetrar árið 1988. Ég var að lesa uppúr fyrstu ljóðabók minni á Hótel Borg á Besta vini ljóðsins, var að koma fram í fyrsta sinn; þekkti fáa hér í Reykjavík, og fáir vissi hver ég væri. Við eitt borðanna sátu þeir hlið við hlið, Guðbergur og Sigurður A Magnússon. Þegar ég var búinn að fara með tvö ljóð, hallaði Sigurður sér að Guðbergi og spurði, hver er þessi drengur, og hverra manna? Og Guðbergur svaraði, án þess að bregða svip: Þetta er sonur Stefáns Harðar Grímssonar.
Sem Sigurði A þótti allnokkur tíðind. Og þetta kvöld var ég, múrarsonur úr Keflavík, snögglega orðinn að syni Stefáns Harðar.
Þegar ég heyrði þessa sögu sá ég Guðberg í nýju ljósi. Hafði aldrei hitt hann, né talað við, en þekkti auðvitað rithöfundinn, ólíkindatólið; og hafði tekið eftir því þegar ég á sínum tíma sótti bókasafn Keflavíkur nær daglega í leit að bókum til að seðja ákaft hungur mitt eftir skáldskap, að bækur Guðbergs voru sjaldan inni, þar sem handfylli samnemenda minna í fjölbrautaskólanum voru svo heltekin af skáldsögum Guðbergs að þau einfaldlega neituðu að skila þeim. Sem gladdi bókaverðinn nokkuð. Hann hafði nefnilega ekkert álit á skáldskap Guðbergs og fannst bókasafn sitt vaxa á því að missa bækur hans.
Ég hefði séð Guðberg í salnum á Hótel Borg, þetta löngu liðna vetrarkvöld fyrir rúmum 30 árum, þorði ekki fyrir mitt litla líf að gefa mig að honum, en bæði undraðist og gladdist þegar ég heyrði af þessum orðaskiptum hans og Sigurðar; þegar Guðbergur gerði Stefán Hörð að föður mínum. Veit ekki hversvegna hann gerði það, gleymdi hreinlega að spyrja þegar ég kynntist honum mörgum árum síðar, en grunar að þarna hafi grallarinn í honum einfaldlega tekið völdin. Þörfin að segja eitthvað sem kæmi heiminum úr jafnvægi, vekti undrun, óvissu. Brá ekki svip þegar hann skáldaði þetta upp, en flissaði barnslega glaður undir niðri.
Til þess eru skáldin. Til að koma heiminum úr jafnvægi. Að breyta honum. Bæði með alvöru og grallaraskap.
Og það gerði Guðbergur, með verkum sínum og skrifum.
Sem skáldsagnahöfundur og samfélagskrítiker var Guðbergur hvass, háðskur, stundum grimmur, stundum miskunnarlaus, ekki alltaf sanngjarn, og hafði djúplæga þörf fyrir að fara þvert á alla strauma, virtist jafnvel hafa yndi af því að ganga fram af fólki, hneyksla það, halda einhverju fram sem var fullkomlega þvert á ríkjandi skoðun. Svo háðskur og virtist forðast einlægni sem heitan eldinn.
Það var sú mynd sem ég hafði af honum þegar ég gekk inn í vél Icelandair fyrir um 15 árum, á leið minni til Þýskalands, og var þar heilsað svo óskaplega glaðlega og hlýlega af Guðbergi Bergssyni – þá höfðum við aldrei talað saman. Framundan var rúmlega vikuferð þvers og kruss um hið stóra Þýskaland, þar sem við þvældust saman í lest á milli borga á hinum og þessum bókmenntaviðburðum. Við áttum eftir að fara fleiri slíkar ferðir, um Þýskaland og Frakkland – og í þeim kynnist ég öðrum Guðbergi en þeim sem ég þekkti úr skáldsögum hans og pisltum.
Þessi var hlýr, gjafmildur, skemmtilegur, einlægur. Í viðtölum gerði hann yfirleitt fremur lítið úr verkum annarra höfunda, eða lét að því liggja, nú eða sagði það hreint út, að fyrir utan hann væri fátt um alvöru höfunda á Íslandi. Hann og Gunnar Gunnarson þeir einu sem hefðu kunnað að skrifa skáldsögur á 20 öldinni, og svo framvegis. Guðbergur Bergsson á flandri um Þýskaland og Frakkland var hinsvegar fullur áhuga á verkum annarra höfunda, fylgdist vel með, hreifst af og faldi það ekki. Og þótt við hefðum lítið samand utan þessara ferðalaga, þá tengdu þau okkur sterkum böndum. Okkur fannst gott og gaman að vera hvor með öðrum. Ég fékk hann til að segja mér sögur af horfnum tímum, uppexti hans í Grindavík, árum hans á Spáni, kynnum af íslenskum sem erlendum höfundum; við ræddum fagurfræði skáldsögunnar, mjög oft ósammála – en yfirlætið sem Guðbergur sýndi ósjaldan í viðtölunum var svo fullkomlega fjarri. Og hann lét sem hann þurfti í sífellu að kenna mér að ferðast, á hvaða kaffihús og veitingastaði maður ætti að fara, hvað skyldi varast; gat brostið á með löngum fyrirlestrum þar um – og alltaf með þessa glettni í augum þegar hann þóttist skamma mig fyrir að taka sig ekki alvarlega.
Guðbergur var afar sparsamur. Fannst heimskulegt að taka leigubíl ef strætisvagn eða sporvagn var í boði, og lagði mikið upp úr því að halda útgjöldum í lágmarki; gat haldið langar tölur um það, með furðulegum útidúrum, hristandi höfuðið yfir flissi mínu og alvöruleysi undir því tali. Þú ert svo ungur og vitlaust – sagði hann reglulega – að það þýðir ekkert að sleppa þér lausum; dró mig síðan á næsta kaffihús eða veitingastað, hvatti mig til þess að fá mér stóran bjór – borgaði síðan allt saman sjálfur. Ég mátti aldrei borga, það kom ekki til greina. Sparsemi hans, næstum spartversk, náði bara til hans.
Maður á að spara, sagði hann við mig þegar við komum einu sinni á Charles de Gaulle flugvöllinn. Þurftum að bíða þar í 5 klukkutíma og hann teymdi mig um rangala flugvallarins í leit að veitingastað sem hann gæti fellt sig við. Komdu með mér, annars týnist þú, sagði hann. Við fundum loks stað sem hlaut náð fyrir augum hans, hann pantaði stóran bjór fyrir mig, vatn fyrir sig, og harmaði það síðan að geta ekki lengur gert það sem var hans vani þegar hann kom á Charles de Gaulle; nefnilega að taka starfsmannalyftuna niður í mötuneyti starfsfólksins og fá sér þar að borða, ókeypis. Ég talaði bara spænsku, sagði hann, og þá héldu allir að væri skúringamaður.
Allir höfundar eru skúringarmenn, bætti hann við, en ég er samt sá eini sem kann að skúra.
Og svo flissaði Guðbergur.
Í því flissi var alvöruleysi hans og alvara, þessi blanda sem gerði hann einstakan, og sem tengdi okkur tvo saman. En nú er hann farinn, hættur að stríða okkur, hættur að ganga fram af okkur, kominn í handanheiminn, líklega strax farinn að birta þar pistla sem skapar ókyrrð á milli stjarnanna. Hann er áreiðanlega búinn að finna ódýrasta kaffihúsið – og ég ætla að leita Guðberg þar uppi þegar ég fer yfir. Hann mun hrista höfuðið, segja, og ég sem hélt að þú værir of ungur vitlaus til að deyja. En pantar síðan stóran bjór fyrir mig og við byrjum að rökræða um fagurfræði skáldsögunnar, og hversu heitt vatnið eigi að vera í skúringafötunni.“