Á hverjum virkum degi kemur ný færsla frá Ármanni Jakobssyni á heimasíðu hans Bókmenntir og listir þar sem hann skrifar um bækur og kvikmyndir. Ritstjórn Kaktussins vottar hér með Ármanni og síðu hans aðdáun sína. Það er hægt að hæla Ármanni fyrir margt en það sem kveikjan að þessum Kaktus-skrifum (og hóli) er setning sem birtist í gær eða fyrradag á síðu Ármanns: „Staðreyndin er sú að umfjöllun um bókmenntir er að mestu horfin úr íslenskum fjölmiðlum og öðrum miðlum og meðal annars þess vegna er þessi síða til; ég kaus heldur að kveikja á eldspýtu en bölva myrkrinu.“
Það eru fleiri sem hafa einmitt farið að ráði Ármanns og skrifa um bækur og bókmenntir á eigin heimasíðum og kveikt á sinni eldspýtu í stað þess að bölva myrkrinu. Kaktusinn þekkir auðvitað ekki allar þessar síður. En hingað í útlegðina hefur ritstjórnin frétt af Þórdísi Gísladóttur sem skrifar oft skemmtilega á síðuna: Hér má bruðla með orð. Rithöfundurinn og tónlistarmaðurinn Eiríkur Örn Norðdahl fjallar á áhugaverðan hátt um líf sitt sem rithöfundur á Fjallabaksleiðinni, og rithöfundurinn Hermann Stefánsson skrifar hugleiðingar sínar í Norðanáttinni. Það eru örugglega fleiri góðar síður í loftinu þar sem áhugafólk um bækur, bókmenntir, ritstörf og útgáfu geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Ritstjórn Kaktussins þekkir bara ekki fleiri en ábendingar um slíkar íslenskar síður eru alltaf vel þegnar.