Sennilega er nýja bók Sally Rooney, Intermezzo, sú bók sem beðið er eftir með hvað mestri óþreyju í heimi bókmenntanna. Og einmitt sú staðreynd réttlætir enn eina færsluna um höfundinn og nýju bókina hennar. Það verður spennandi að sjá hvort Forlaginu (nýja íslenska útgefanda Sally Rooney) tekst að lyfta höfundinum upp í hæstu hæðir á Íslandi eins og tekist hefur víða um heim.
Það lofar góðu að markaðsdeild Forlagsins virðist vera í stuði um þessar mundir. Útgáfan á Hníf Salmans Rushdies tókst mjög vel og sætir það tíðindum að bók eftir höfund eins og Salman Rushdie (eða bara þýdd bók) lendi í efsta sæti metsölulista Eymundsson eins og raunin er þessa vikuna. Einnig þykir fréttnæmt að þrjár efstu bækur listans eru Forlags-bækur. Glæpasagan Í djúpinu eftir tiltölulega óþekktan höfund Margréti S. Höskuldsdóttur er númer tvö og Ísafjarðarskáldið finnska Satu Rämö er í þriðja sæti með bók sína um lögreglukonuna Hildi.
Þótt Sally sé aðeins 33 ára (Christ!) hefur henni tekist að fá milljónir lesenda til að bíða í örvæntingu eftir hverri nýrri bók sem kemur frá henni. Og þó að nýja bókin komi ekki út fyrr en á morgun, þann 24. september, hefur þegar birst dómur í áhrifamesta miðli Bretlands þegar kemur að bókmenntum og menningu: The Guardian. Og þar eru ekki spöruð stóru orðin. „Eru betri rithöfundar að störfum einmitt nú? … Intermezzo er fullkomin – sannarlega yndisleg bók – blíð, fyndin og spennandi saga um sorg og áhrif hennar á sálarlífið og Sally Rooneys hingað til besta lýsinga á flækjum ástarlífsins.“
Hins vegar er sú bók sem ritnefnd Kaktussins bíður eftir með með mestri eftirvæntingu eða fimmta bókin í hinum svokallaða Morgunstjörnu-bókaflokki. Nýja bókin hans kemur út í október í Noregi og hefur fengið titilinn Arendal. Áður hefur Knausgård sagt að bókaflokkurinn verði fimm bækur en nú er ljóst að bækurnar verði fleiri. Enn eru svo margir lausir endar og honum tekst ekki að binda alla hnúta í fimmtu bókinni. „Ég veit bara alls ekki hvernig þetta allt endar. Kannski þarf ég að skrifa tvær eða þrjár bækur til viðbótar til að klára þetta allt,“ sagði Knausgård í viðtali við norska dagblaðið VG í vikunni. Í Noregi hafa viðtökur á Morgunstjörnu-bókunum verið upp og niður en í Svíþjóð fær Knausgård snilldardóma: „Ég hef sjaldan lesið bækur sem hafa hitt mig svona beint í hjartastað. Morgunstjörnubækurnar eru bækur um að vera manneskja á þröskuldi nýs tímaskeiðs.“ segir sænska dagblaðið Dagens Nyheter.
Þær fréttir berast hingað á ritstjórnarskrifstofu Kaktussins að Anne Carson þyki nú líklegust, skv. veðbönkum, til að hreppa bókmenntaverðlaun Nóbels. Þann 10. október um hádegisbil tilkynnir Nóbelsnefndin niðurstöðu sína. Ef Anne Carson hlýtur verðlaunin verður hún annar Nóbelshöfundur Íslendinga, en hún hlaut ríkisborgararétt árið 2022.

