Ég held að ég sé lesblindur, eða lesblíður, eins og maður kallar það, kannski eini bókaútgefandi heims sem er lesblindur. Nú er ég að lesa yfir þýðingu mína fyrir Palla og ég sé að það eru ótrúlega margar áláttarvillur í þessum fyrsta yfirlestri. Og ótrúlega margar ásláttarvillur sem fara framhjá mér. Ég les sömu setninguna aftur og aftur og horfi framhjá augljósum ásláttarvillum. Þetta er nú meiri bæklunin fyrir bókaref.
Fótboltaæfing í gær! Mér finnst svo ótrúlega gaman að leika mér, sérstaklega ef ég get elt bolta. Tennisbolti, fótbolti… Gefið mér bolta og ég er glaður.
Stóra frétt dagsins að hingað upp til Norður-Sjálands kemur nóbelskandídatinn í bókmenntum, Jón Kalman. Hann er væntanlegur eftir skamma stund svo nú verð ég að flýta mér.