Í síðustu viku var finnska skáldkonan Märta Tikkanen heiðruð fyrir ævistarf sitt. Hún er víst talin einn mest lesni höfundur Norðurlanda. Ég held að einungis ein bók hafi þó komið út á íslensku eftir þessa ágætu konu í þýðingu Kristínar Bjarnadóttur. Það var bókin með þennan líka fína titil Ástarsaga aldarinnar. Þar lýsir hún á kaldhæðnislegan hátt (og af óvenjulegu umburðarlyndi) hjónabandi sínu og hins alkóhólíseraða rithöfundar Henrik Tikkanen. Tókst Märtu í bókinni að gera alla drykkjueymdina á heimilinu töluvert broslega. Bókin kom út árið 1998. Hinn sídrukkni Henrik – hann dó árið 1984 – var alla tíð gefandi uppspretta fyrir skáldskap Märtu því margar af bókum hennar fjalla einmitt um hjónaband og valdabaráttu innan hjónabandsins. Árið 2005 skrifaði Märta til dæmis bókina Tvær senur úr hjónabandi listamanna þar sem hún lýsir hjónabandi sínu með Henrik sem eilífri og slítandi samkeppni tveggja rithöfunda.
Hin ótæmandi lind.