Site icon K A K T U S I N N

Að læðast óséður í gegnum þykka áfengisþoku.

Tónlistarmanninum Bod Dylan, sem nú er orðinn 83 ára gamall, hlotnaðist bókmenntaverðlaun Nóbels árið 2016. Nú átta árum síðar átti þessi aldni herramaður erindi til þýsku borgarinnar Frankfurt og valdi að dvelja á hinu virðulega hóteli Frankfurter Hof.  Bod Dylan hafði ekki hugmynd um að á sama tíma og hann dvaldi í þýsku fjármálaborginni var haldin hin árlega bókamessa, Frankfurt Book Fair (eða Frankfurter Buchmesse), þar sem flestir af útgefendum heimsins safnast saman í nokkra daga í október til skrafs og ráðagerða og til að kynna sér það sem efst er á baugi í heimi bókmenntanna.

Á Frankfurter Hof er mikill og stór samkomusalur og er venjan sú að á kvöldin hittist útgefendur þar eftir að hafa eytt deginum í ráðstefnusölum messunnar og borðað kvöldmat á veitingahúsi í félagsskap annarra útgefenda. Á Frankfurter Hof er því þröng á þingi eftir klukkan tíu á kvöldin þá daga sem á bókamessunni stendur yfir. Þegar Bob Dylan mætti í Frankfurter Hof á leið í háttinn var hann hissa á hinum mikla mannfjölda sem hafði safnast saman fyrir utan hótelið hans og öllu því fjölmenni sem stóð inni í samkomusal hótelsins. Honum var sagt að þarna væru allir heimsins útgefendur samankomnir og þótti honum töluvert til þess koma.

Bob Dylan hafði nýlega lesið hryllingsbókina The Great God Pan eftir Arthur Machen sér til mikillar ánægju. Bókin kom fyrst út 1894 en lítið útgáfufyrirtæki, Crystal Lake Publishing sem sérhæfir sig í útgáfu á hryllingsbókum, hafði fyrir stuttu endurútgefið verkið í glæsilegum búningi. Bob Dylan þótt þetta svo virðingarvert framtak að hann ákvað nota tækifærið og ganga inn í mannþröngina á Frankfurter Hof til að reyna að hafa upp á forsvarsmönnum litla útgáfufyrirtækis sem hafði gefið The Great God Pan á svo glæsilegan hátt og taka í höndina á þeim til að þakka fyrir framtakið.

„Ég vissi ekki að til væru svona margir bókaútgefendur,“ skrifar Bob Dylan í færslu sinni á X og bætir við að hann hafi því miður ekki haft upp á forsvarmönnum Crystal Lake Publishing sem hann hafði ætlaði að þakka. Áfengisþokan var víst svo þykk á Frankfurter Hof að Bob Dylan gat gengið óáreittur um sali Frankfurter Hof, á milli allra forleggjaranna, án þess að nokkur bæri kennsl á  þennan aldna Nóbelsverðlaunahafa.

Exit mobile version