Ritstjórn Kaktus barst bréf í gær þar sem bréfritari velti vöngum yfir í hvaða átt Kaktusinn stefndi. „Ég las Kaktusinn í gær og sá að hann er að verða meira kafkaesque. Eller hvad, eiga bara allir að vita hver þessi Lars er?“ 

Þarna vísar lesandinn í stutta frásögn sem birtist nýlega á Kaktusnum af dönskum höfundi, Lars, sem þráði félagsskap og eiginhandarárritun frá Douglas Coupland. Og til að svara spurningunni. Það er ekki ætlast til þess að neinn þekki Lars.

Tilskrifin eru svo sem ekki í frásögur færandi en ég nefni þetta sendibréf hér því ég las bréfið áður en ég reimaði á mig hlaupaskóna. Síðan hljóp ég af stað með bergmálið af þessu vinsamlegum orðum bréfritara í huganum. Á hlaupunum hafði ég ákveðið að hlusta á nýjasta þátt af Betri bækur. Og nú kemur tengingin milli bréfs og hlaupa með Betri bækur í eyrunum; þátturinn var helgaður manninum sem kafkaesque-hugtakið á rætur sínar að rekja til; Franz Kafka.

Í þættinum var aðallega rætt við prófessor Ástráð Eysteinsson um líf og störf Kafka og þvílík ánægja var það fyrir mig að hlusta á skýra, vel framsetta og áhugaverða frásögn Ástráðs. Ég hugsaði aftur og aftur með sjálfum mér hvers góður hann væri að miðla fróðleik sínum og hversu fumlaust hann kom vitneskju sinni á framfæri án allra hikorðanna– heyrðu, sko, þarna, þú skilur, ha, – sem er svo mjög farið að einkenna mál þeirra sem koma fram á öldum ljósvakans. Það var svo augljóst að Ástráður vandaði sig og hann er greinilega vanur að orða hugsanir sínar á greinargóðan hátt.