Eins og allir vita eru hljóðbækur orðnar vinsæl leið til að gleypa skáldverk sem maður hefur varla tíma til að lesa. Að nýta tímann til að hlusta á meðan maður gerir eitthvað annað er svo sannarlega viðeigandi og smart í nútímasamfélagi. Tvö verkefni á sama tíma. Æði!

En það kostar víst peninga að fá góða lesara til að ljá bók rödd sína og ef það er eitthvað sem forlögin hata meira en allt annað þá er það að eyða peningum. Þar fyrir utan eiga forlögin erfitt að fá tíma hjá bestu lesurunum. Jóhann Sigurðsson er ekki alltaf laus og heldur ekki Katla Margrét Þorgeirsdóttir. Og hvað á forlag þá til bragðs að taka.

Í Noregi hefur forlagið Legatum Publishing fundið lausn en um leið gert allt sjóðandi vitlaust. Forlaginu hefur tekist að endurskapa rödd hins löngu dauða skálds Knut Hamsuns með hjálp gamallar hljóðupptöku með skáldinu og gervigreindarvélmennis. Vélmennið var svo fengið (án endurgjalds) til lesa skáldsöguna Sult með rödd hins látna höfundar. Frekar draugalegt.

Þótt rödd Knut Hamsuns lifi er hann sem sagt dáinn fyrir langa löngu og því er höfundarréttur á bókum hans fallinn úr gildi og er orðin að almannaeigu. Hver sem er getur gefið út texta eftir skáldið á þann hátt sem best hentar. Samt mótmæla afkomendur og aðdáendur Hamsuns hástöfum yfir því að draugur skáldsins sé notaður til að lesa Sult.