Það er barátta um athyglina og ekki verður hún minni eftir því sem nútíminn verður nútímalegri. Flestir rithöfundar, í leit að viðurkenningu á störfum sínum og tilveru og til að halda nafni sínu verkum sínum á lofti, hafa gripið til facebook og instagram. Leitin að nýjum leiðum til að kynna sig og bækur sínar á hressilegan og eftirtektarverðan hátt er án enda. En það er ekki öllum gefið að kasta eingöngu jákvæðri birtu á sig með þeim aðferðum sem samfélagamiðlarnir bjóða upp á. Eigin sviðsetning heppnast ekki alltaf eins og til er ætlast.
Camilla Läckberg, sem er einn þekktasti glæpasagnahöfundur Norðurlanda hefur ekki verið feimin við að hampa sjálfri sér opinberlega og gerir sitt ýtrasta til að vekja áhuga á persónu sinni og verkum sínum. Hún er vön að beita klækjabrögðum sér til framdráttar og henni hefur líka svo sannarlega heppnast að selja nafn sitt svo gullið streymir í stríðum straumum í vasa hennar.
Í vikunni tilkynnti Camillu Läckberg að hún hefði gert nokkuð umfangsmikinn samning við sjónvarpsstöðina Viaplay í Svíþjóð um að tekin verði upp svokölluð veruleika-sjónavarps-sería í anda The Kardashians með rithöfundinn og fjölskyldu hannar í forgrunni .
Í fréttatilkynningu sem barst á fjölmiðla og Kaktusinn fékk í hendurnar í síðustu viku segir Camilla meðal annars: „Um helgina varð ég fimmtug (hún átti afmæli þann 30. ágúst) og það held ég að sé fullkominn aldur fyrir mig til að opna dyr og fara að veita fleirum aðgang að lífi mínu, sýna broguðu fjölskylduna mína og skemmtilegu vinina mína. Svo langar mig til að leyfa öðrum að verða vitni að öllu því skrýtna og áhugaverða sem gerist í lífi mínu. Enn ein frægðarfjölskyldan, hugsar þú kannski, en ég held að sjónvarpsáhorfendur séu forvitnir að vita meira um okkur. Það gerist margt óvenjulegt og ég lofa að það verður hvorki falið eða fegrað.“
Sjónvarpsserían um glæpahöfundinn og fjölskylduna hennar (fjögur börn og eiginmann) er í átta þáttum og verður frumsýning vorið 2025 á Viaplay.
Á Íslandi hefur enn ekki skapast hefð fyrir slíkum veruleikaþáttum. En möguleikarnir eru endalausir og margir höfundar gætu fylgt í fótspor Camilla Läckberg? „Lífið í fjármálahverfinu,“ Bragi Ólafsson og Sigrún Pálsdóttir. „Tveggja rithöfunda fjölskylda,“ Fríða Ísberg og Tómas Ævar Ólafsson. Eða Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Bragi Páll Sigurðsson. „Ég reyki ekki Viceroy-sígarettur,“ Arnaldur Indriðason. „Í bankanum á morgnana og við skrifborðið á kvöldin,“ Ragnar Jónasson. „Ég geng með hatt og keyri Skoda-bíl,“ Hallgrímur Helgason. „Veðurtepptur,“ Eiríkur Örn Norðdahl
– ALB fréttaritari Kaktussins í Stokkhólmi

