Þau tíðindi bárust heiminum í gær að JK Rowling hefði sent út á veraldarvefinn nýja sögu The Ickabog sem hún hafði skrifað fyrir börnin sín fyrir nokkrum árum. Kórónaveiran í Englandi er seig og heldur fólki í skák. Því hefur Rowling ákveðið að gefa öllum sem vilja kost á að lesa söguna án endurgjalds. Sagan verður síðan gefin út í bókarformi í haust.

Rowling hefur alltaf verið mér hálfgerð ráðgáta. Ég gruna Rowling að um að hafa aukna sölu bóka sinna ávallt í huga. Ég er nokkuð viss um að Rowling hefur eitthvað annað í hyggju en bara að gleðja börnin. Ég gaf út bækur Rowling á Íslandi og hef sjaldan lent í höggi við harðsvíraðri umboðsmann en einmitt umboðsmann Rowling. Ég þurfti að gefa söluskýrslu mánaðarlega yfir allar bækur hennar sem ég hafði gefið út (venjan er að gera slíkar skýrslur einu sinni á ári). Og það var farið nákvæmlega yfir skýrslurnar og maður fékk spurningar í hausinn ef eitthvað var umboðsmanninum ekki alveg að skapi. Umborðsmaðurinn skipti sér af öllu þótt hann hefði ekki vit á aðstæðum á Íslandi. Hann vildi hækka verð bókanna, hafa fleiri bækur í búðunum, seinka útgáfu á kilju, ekki gefa út hljóðbók … Þetta var gífurlega óviðkunnanleg samskipti. Ég man hvað ég bölvaði oft í hljóði yfir þessum umboðsmanni og mánaðarskýrslunum. Rowling hikar ekki við að draga hina og þessa í réttinn: útgefendur, kvikmyndaframleiðendur, minjagripasala og sjálfa aðstoðarkonu sín (sem hafði eytt af peningum Rowling fyrir eigið kaffi og eitthvað fleira.)

En hvað um það ég hef aldrei skilið persónu Rowling en ég geri mér grein fyrir að það er ekki alltaf gaman að vera frægur og ágengni fólks er örugglega óþolandi.

En Rowling hefur lagt út tvo kafla úr þessari nýju bók The Ickabog og enn og aftur sýnir hún færni sína. Hún er flinkur höfundur. Ég hlakka til að lesa þriðja kaflann sem birtur verður síðar í dag.