Á Vesturgötu 10 opnar brátt ný bókabúð. Það gerist ekki svo oft í Reykjavík eða á Íslandi að einhver ákveði að opna bóksölu og gerast bóksali. Ritnefndin vonar heitt og innilega að bókabúðin við Vesturgötu verði langlíf og vesturbæingar taki búðinni opnum örmum þótt hún bjóði ekki upp á ókeypis og stórt bílaplan. Það verður víst kaffi á könnunni.

Þær fréttir berast frá Bandaríkjunum að þeirra stærsta bókabúðakeðja, Barnes & Nobles, hyggist opna 58 nýjar búðir víðsvegar um Bandaríkin á þessu ári. Í fyrra, eða árið 2023, opnaði bókabúðakeðjan hvorki meira né minna en 30 nýja bóksölustaði. Þessi útvíkkun sölunetsins er hluti af nýrri strategíu (hernaðaráætlun)  um að  gera búðirnar og sölubækur sýnilegar sem víðast um Bandaríkin og á stöðum þar sem markaður er fyrir bækur.

Nú eiga Barnes & Nobles 600 verslanir í Bandaríkjunum og þar búa 335 milljónir íbúa sem þýðir að bókabúðakeðjan reki eina bókabúð á hverja 550.000 íbúa. Sem sagt dálítið stærri markaður en fyrir bókabúðina í Vesturgötu sem á víst að heita Skálda.

Hægt er að styrkja Skáldu á Vesturgötu með frjálsum framlögum.  Hér er tengillinn til Karolina-fund