Aftur og aftur teygja útlenskir safnarar klær sínar hingað til Íslands og reyna að krækja í fyrstu útgáfu af bókinni Harry Potter og viskusteinninn. Þessir útlendingar hafa í tímans rás haft samband við Bjartsforlagið sem gaf út Harry Potter, við íslenskar fornbókasölur og við fyrrum útgefanda forlagsins í ákafri þrá sinni eftir þessu sjaldgæfa eintaki. Fyrsta útgáfa Harry Potter og viskusteinninn var prentuð í 1500 eintökum og prýddi mynd eftir Guðjón Ketilsson forsíðuna. Auk þess var sérkennileg prentvilla á forsíðunni í fyrstu prentun. Höfundarnafnið J.K. Rowling var skrifað Joanna K. Rowling en rétt er Joanne K. Rowling. Bókasafnarar eru því óðir að læsa fingrum sínum í þessa útgáfu og bjóða töluvert háa upphæð fyrir heillegt eintak af bókinni.
Um daginn var uppboð hjá enska uppboðshúsinu Sotheby á vatnslitamynd sem hafði prýtt fyrstu útgáfu ensku bókarinnar Harry Potter and the Philosopher’s Stone. Var myndin seld fyrir 1,9 milljónir dollara eða um það bil 260 milljónir ikr. Myndin er því orðinn verðmætasti hlutur sem tengist hinni ógurlegu Harry Potter-myllu.
Segir sagan að fjórir ákafir kaupendur (þeir voru ekki viðstaddir uppboðið heldur buðu í verkið í gegnum síma) hafi keppst hatrammlega um myndina. Tók uppboðið því óvenju langan tíma.
Myndin á ensku útgáfuna er máluð af listamanninum Thomas Taylor árið 1997 og var hann þá aðeins 23 ára. Á þeim tíma starfaði Thomas sem afgreiðslumaður í barnabókabúð í Cambridge en hinn frægi forleggjari J.K Rowling. hjá Bloomsbury forlaginu, Barry Cunningham, hafði af einhverjum ástæðum samband við þennan óþekkta, og barnunga myndlistarmann og bað hann um að mála myndina af Potter og lestinni.
Það er sem sagt þessi ágæti Thomas Taylor sem málaði fyrstu myndina af sjálfum Harry Potter út frá texta Rowling og það tók hann tvo daga. Sjálfur eignaðist Thomas aldrei eintak af bókinni. Hann hafði þó pantað 10 eintök af fyrstu útgáfu bókarinnar fyrir bókabúðina (bókin var þó aðeins prentuð í 500 eintökum) sem hann vann í en af einhverjum ástæðum þótti honum aldrei ástæða til að fá eintak fyrir sjálfan sig.
ps. JK Rowling heitir bara Joanne Rowling. En útgefendur Harry Potter vildu ekki gera það of greinilegt að kona skrifaði bækurnar því markaðsdeild Bloomsbury forlagsins hafði reiknað með að kaupendur bókanna væru fyrst og fremst drengir og þeir vildu síður bækur eftir kvenhöfunda. Ekki veit ég hvaðan markaðsdeildin fékk þessa speki sem ég held að sé alvitlaus. En deildin fékk það í gegn að nota upphafsstafi Rowling. En J. Rowling þótti ekki nógu gott og var höfundurinn því beðin um að velja sér millinafn og hún valdi millinafnið Kathleen sem er nafn ömmu hennar. Þaðan kemur K-ið í JK Rowling.
pps. JK Rowling kallar sig líka Joanne Murrey þegar hún vill komast undan frægð sinni. Murrey er eftirnafn eiginmanns hennar Neil Murrey.