Erum komin inn í eyðimörkina. Þetta er skrýtið land Óman, eiginlega sandur og steinar og svo vaxa skyndilega upp pálmalundir mitt í auðninni. Ég get ekki sagt að mér finnist landið beint fallegt, en auðnin hefur sinn sjarma. Hér er nútími; nýir vegir, skólar fyrir alla, heilsugæsla fyrir alla, rafmagn til minnstu húsa í fjærlægum afdölum og internet, líka hérna í eyðimörkinni. Sultaninn, sá sem öllu ræður, er vinsæll maður enda lætur hann hluta af olíuauði landsmanna renna til að byggja upp land.

Ég get ekki annað en dáðst að karlmönnunum hér sem ganga um í síðum, hvítum kyrtlum. Ég hef aldrei séð blett á kyrtli, allir ganga um í skjannahvítum, nýstrauuðum kyrtlum. Það flottasta var þegar ég gekk framhjá dekkja- og olíuverkstæði þar stóð eini starfsmaðurinn í svo hvítum kyrtli að hann mundi sóma sér vel í ÓMÓ-þvottaefnisauglýsingu.

Ég heyrði frá gömlum kunningja mínum í gær sem gantaðist með að hann hefði keypt sér nýjan bíl og tímdi varla að keyra hann, bíllinn væri svo fínn. Það eru tveir aðrir menn sem ég þekki sem neita að keyra eigin bíla. Einn á glænýjan SAAB-bíl keyrðan 32 km. Bíllinn stendur í svo heppilegu bílastæði rétt utan við húsið hans í einni af stórborgum Evrópu, þar sem góð bílastæði eru vandfundari en vatnsból í eyðimörk, að hann vill ekki færa SAABinn. Bíllinn hefur staðið kyrr í stæði sínu síðan 2012. Hinn maðurinn skammst sín fyrir hvað hann á fínan bíl sem hann eignaðist fyrir fáum mánuðum. Þetta er þessi svokallaði nýhræsni sem gengur út á að skammast sín fyrir hin miklu efnislegu gæði sem menn sjálfir hafa sankað að sér. Neita að til dæmis horfast í augu við fínu bílana sína, jafnvel neita að setjast upp í þá, neita að horfast í augu við eigin auðsöfnun en tala eða láta líta út fyrir að þeir séu antimateríalistar. Ætli þetta eigi ekki að vera eins konar sósíalismi.