Ritnefnd settist á fund í morgun í kringum hringborðið á forlagsskrifstofunni í Danmörku. Ákveðið var að í dag skyldi Kaktusinn fjalla  um 1) Han Kang, nýja Nóbelsverðlaunahafann, 2) um viðbrögð norrænna útgefenda hennar við verðlaununum og 3) útgáfudans íslenskra höfunda.

Hver er Han Kang í stuttu máli? Hún er fædd árið 1970 (54 ára) í suður-kóreanska bænum Gwangju. Þegar hún var níu ára flutti hún með fjölskyldu sinni til Seoul. Pabbi hennar er líka rithöfundur og hún hefur sagt að tónlist,  myndlist og ritlist hafi alla tíð fyllt líf hennar. Hvergi eru upplýsingar um mömmu hennar að finna.  Han Kang stundaði námi í kóreönskum bókmenntum í Yonsei háskólanum í Seoul.

Fyrstu ritverk hennar voru ljóð sem birtust í kóreönskum tímaritum en árið 1995 (25 ára) gaf hún út sitt fyrsta ljóðasafn. Í kjölfarið komu út smásagnasöfn og skáldsögur. Það var árið 2007 sem hún sló í gegn með bókinni Grænmetisætan sem kom út hjá Bjarti árið 2017. Þar segir frá Yeong-Hye og eiginmanni hennar sem lifa afar venjulegu lífi. Í upphafi bókarinnar segir hinn fremur ótrúverðugi og hálfheimski sögumaður (eiginmaðurinn) að aðeins eitt sé undarlegt við konu sína Yeong-hye. Hún notar ekki brjóstahaldara. Annars er hún alveg eðlileg. Þögul, auðmjúk, skyldurækin. Sem sagt dæmigerð kóreönsk húsmóðir. Nema þetta með brjóstahaldarann. Eiginmaðurinn vinnur á skrifstofu en hún sinnir húsmóðurhlutverkinu af skyldu fremur en áhuga. Dag einn ákveður hún að gerast grænmetisæta. ,,Mig var að dreyma,“ er eina skýringin sem hún gefur – í samfélagi þar sem það er bæði hneyksli og skammarlegt að borða ekki kjöt.

Grænmetisætan fékk hin virtu Man-Booker verðlaun árið 2016 og líta margir svo á að þau verðlaun sé oft fyrsta skrefið í átt að hinum eftirsóttu Nóbelsverðlaunum.

Forvitnilegt var að fylgjast með viðbrögðum norsku, sænsku og íslensku útgefenda Han Kang við fréttunum um verðlaunin. Frá norska forlaginu Pax birtist myndbandsupptaka þar sem starfsmenn forlagsins stóðu fyrir framan stóran sjónvarpsskerm og fylgdust með ritara Nóbelsverðlaunanna tilkynna verðlaunahafa ársins. Um leið og nafn Han Kang var nefnt hoppaði hópurinn, allir sem einn, hæð sína í loft upp og lögðust í mikil faðmlög eins og þau hefðu unnið heimsmeistarakeppni í bókaútgáfu. Þarna sást fólk þerra gleðitár af vöngum.

Forleggjarinn hjá norska Pax, Marianne Björndal, sagði í viðtali við norsku pressuna að valið hefði auðvitað komið þeim á forlaginu á óvart þótt Han Kang ætti verðlaunin svo sannarlega skilin. „Það var eins og sprengja hefði fallið mitt á skrifstofugólfinu svo mikið var sjokkið. Pax hefur gefið út bækur Han Kangs í áraraðir. Fyrst bókina Lifendur og dauðir kom út árið 2017, síðan Grænmetisætan árið 2018, Hvítur árið 2019, Þetta er ekki kveðja árið 2022 og Námefni í grísku árið 2023. Bækurnar hennar hafa allar fengið mjög góðar viðtökur í Noregi. Þær hafa selst þokkalega. Við höfum þó ekki náð að selja bækur hennar vítt og breitt. Verðlaunin sýna bara að það er mikilvægt að halda áfram að gefa út þýddar bókmenntir frá öllum heimshornum. Við getum  reiknað með því að nú eigi bækur hennar  eftir að seljast í stóru upplagi. Han Kang er sérstakur höfundur, stíll hennar er óvenjulegur, nákvæmur og fágaður. Hún fjallar oft um sögu Kóreu, stríðin sem landið hefur átt í og þau áföll sem þjóðin hefur mátt þola. Þetta er stórkostlegar bókmenntir og hún fjallar um mikilvæg mál. Ég mæli með að fólk byrji á að lesa Grænmetisætuna.“

Sænska forlagið Natur og Kultur hefur gefið út bækur Han Kang í Svíþjóð og þar var forleggjarinn Nina Eidem fyrir svörum þegar blaðamenn bar þar að garði. „Þetta er mikilvægasta stundin á öllum mínum ferli sem bókaútgefandi,“ hrópaði hún og lyfti glasi í átt til samstarfsmanna sinna. „Skál, fyrir frábærri skáldkonu. Hún er svo fín. Skál fyrir gáfaðri og hógværri skáldkonu!“

Starfsmenn Natur & Kultur í Svíþjóð skála fyrir Han Kang og Nóbelsverðlaununum.

Í Danmörku hafa fjölmiðlar veitt veitingu bókmenntaverðlauna Nóbels mikla athygli. Dagblaðið Politiken, sem er flaggskip danskrar menningarumfjöllunar, hefur þegar birt að minnsta kosti fimm greinar um Han Kang, um bækur hennar og um þýðingu þeirra fyrir bókmenntirnar síðan í gær. Leiðari Politiken í dag fjallar um suður-kóreönsku skáldkonuna og verðlaunin.

Á Íslandi er það bókaforlagið Bjartur sem hefur gefið út eina bók eftir Han Khan, Grænmetisætuna. Í færslu á facebooksíðu í tilefni verðlaunanna segir forlagið: „Han Kang hlýtur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum í ár. Bók hennar Grænmetisætan kom út hjá Bjarti árið 2017 og var hún eftirminnilegur gestur á Bókmenntahátíðinni í Reykjavík sama ár. Ingunn Snædal þýddi bókina af alkunnri snilld. Við sendum Han Kang okkar bestu hamingjuóskir!“

Ekki er sennilegt að hamingjuóskir hins íslenska forlags hafi borist alla leið til Seoul þar sem rithöfundurinn heldur sig. Engum hefur nefnilega tekist að ná sambandi við sjálfan Nóbelsverðlaunahafann eftir að sænska akademían tilkynnti val sitt. Pabbi Han Kang, sem heitir Han Seung-won og er 85 ára, ákvað hins vegar að halda blaðamannafund fyrir hönd dóttur sinnar þar sem hann sagði að dóttirin vildi alls ekki fagna þessum verðlaunum. Yfirlýsing hennar sem faðirinn las upp er svohljóðandi: „Það er ekki hægt að halda veislu á meðan ástandið í Úkraínu, Ísrael og Palestínu er eins og það er. Það deyja saklausar manneskjur á hverjum degi. Sænska akademían veitti mér ekki þessi verðlaun til að ég gæti skemmt mér. Það er ekki rétt að fagna nú.“

Nóg um Nóbelsverðlaun.

Sú frétt barst Kaktusnum fyrr í vikunni að Kristín Marja Baldursdóttir hafi ákveðið að yfirgefa útgefanda sinn til margra ára, Forlagið, og koma sér fyrir undir verndarvæng Péturs Más Ólafssonar og Páls Valssonar hjá Bjarti-Veröld. Nýja skáldsaga hennar, Ég færi þér fjöll, kemur út í haust undir merkjum Bjarts. Kaktusinn hefur ekki hugmynd um hvað veldur þessum vistaskiptum skáldkonunnar en þetta er án efa nokkur missir fyrir Forlagið þar sem Kristín Marja hefur verið einn af helstu söluhöfundum útgáfunnar. Bækur hennar hafa selst í þúsundatali. Brotthvarf Kristínar Marju er því  áfall fyrir efnahag Forlagsins sem, eins og flest önnur forlög á Íslandi, þarf að berjast fyrir hverri krónu. Forlagið tapaði 54 milljónum á síðasta rekstrarári.